Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka verður ekki tilbúin fyrir lok þessa mánaðar, eins og upphaflega var áætlað. Fréttablaðið greindi frá málinu.
Stjórnarandstaðan krafðist þess að sett yrði á fót rannsóknarnefnd á vegum Alþingis til þess að fara yfir söluna, en ríkisstjórnin vildi bíða eftir niðurstöðu ríkisendurskoðunar á málinu, sem eins og áður segir átti upphaflega að vera tilbúin í júní. Alþingi verður kallað saman til framhaldsfundar þegar skýrslan er tilbúin.
Umræða