Það er óþægilegt að horfa upp á þingmenn Sjálfstæðis- og jafnvel Framsóknarflokks ástunda niðurrifsstarfsemi á stjórnkerfinu.

Sérfræðingar Atvinnuvegaráðuneytisins hafa legið undir þungum ámælum frá SFS m.a. á þá leið að þeir hafi vísvitandi að afvegaleitt þingið og ástunda einhvers konar fölsun.
Það hefur kveðið svo rammt að þessu að svo virðist vera sem formaður samtakanna hafi sagt af sér þar sem hann treysti sér ekki til þess að taka þátt aðförinni og ráðuneytið sendi sömuleiðis frá sér sérstaka yfirlýsingu vegna málsins sem er hér.
Í henni er allur áburður SFS og minnihlutans á þingi hrakinn skilmerkilega
Í stað þess að þingmenn standi saman sem einn maður gegn skærum auðugra hagsmunasamtaka gegn stjórnkerfinu, þá tekur Sjálfstæðisflokkurinn þátt í þeim. Það ber ekki á öðru en að Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til hliðar borgaraleg gildi og sé orðinn stjórnmálarmur hagsmunasamtaka.
Leigja tonnið á 500.000 kr. og greiða 0 kr. í auðlindagjald og 0 kr. í vsk