• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Covid-19: Tilkynning frá farsóttanefnd

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. júlí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Á Landspítala liggur nú einn sjúklingur með COVID-19 á smitsjúkdómadeild. Alls eru 220 manns í eftirliti á COVID-göngudeild, þar af 15 börn. Fjórir starfsmenn eru í einangrun, fimm eru í sóttkví A og 115 í sóttkví C. Farsóttanefnd ásamt framkvæmdastjórn og forstöðumönnum ákvað á fundi sínum í hádeginu í dag, 21. júlí, að halda áfram að auka sóttvarnarráðstafanir á Landspítala í því skyni að draga úr líkum á að smit berist inn í starfsemina.

Nú þegar hafa eftirfarandi ráðstafanir verið gerðar og tekið gildi:

  1. Tvöföld skimun bólusetts starfsfólks eftir komu frá útlöndum með 5 daga vinnusóttkví á milli. Óbólusettir fylgja áfram reglum stjórnvalda.
  2. Algjör grímuskylda alls starfsfólks og allra þeirra sem eiga erindi inn á spítalann. Börn 12 ára og eldri skulu bera grímu.

Frá og með deginum í dag, 21. júlí, gildir eftirfarandi til viðbótar:

  1. Heimsóknir eru áfram á tilgreindum tímum en aðeins einn gestur má koma til sjúklings á hverjum degi. Ef nauðsyn krefur má fylgdarmaður koma með til aðstoðar. Undanþágur vegna sérstakra tilvika eru í höndum stjórnenda viðkomandi deilda eins og verið hefur. Börn undir 12 ára aldri ættu ekki að koma í heimsókn nema í samráði við stjórnendur viðkomandi deildar. Sjá nánar um heimsóknir hér: https://www.landspitali.is/sjuklingar-adstandendur/hagnytar-upplysingar/heimsoknartimar/
  2. Mælst er til þess að sjúklingar sem koma á göngudeildir, dagdeildir og rannsóknadeildir í viðtöl, meðferðir eða rannsóknir komi einir nema brýna nauðsyn beri til og þá fylgi aðeins einn aðstandandi.
  3. Leyfi inniliggjandi sjúklinga eru almennt ekki leyfð nema leyfi sé hluti af útskriftarundirbúningi eða lykilþáttur í endurhæfingu.
  • Minnt er á að enn gildir sú meginregla að starfsmaður sem fer í einkennasýntöku vegna COVID-19 skal vera heima þar til niðurstaða liggur fyrir. Ljóst er að nú um hásumarið getur þessi ráðstöfun skapað öryggisógn vegna manneklu. Í þeim tilvikum getur stjórnandi/vaktstjóri ráðfært sig við farsóttanefnd um hvað sé til ráða. Farsóttanefnd er að skoða möguleika á að taka upp hraðpróf og verður nánar greint frá því síðar.
  • Farsóttanefnd vill á þessum viðsjárverðu tímum mildilega beina þeim tilmælum til starfsfólks Landspítala að það gæti sín vel í samfélaginu; forðist fjölmenn mannamót, skemmtistaði, veislur og viðburði sem hafa oft leitt til mikillar dreifingar smits. Nú er rétti tíminn til að búa til „sumarkúlu“ og hafa það notalegt með sínum nánustu.
Umræða
Share6Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    209 deilingar
    Share 84 Tweet 52
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?