• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tveir eru í haldi lögreglu vegna skotárásar

Fréttatilkynning frá lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra vegna skotárásar á Blönduósi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. ágúst 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Um kl. 5:30 í morgun, sunnudag, barst lögreglunni á Norðurlandi vestra tilkynning um að skotvopni hefði verið beitt gegn tveimur einstaklingum í heimahúsi á Blönduósi og að um alvarlegt tilvik væri að ræða. Lögregla vopnaðist áður en farið var á vettvang, auk þess sem annað viðbragð innan lögreglu var virkjað, þar á meðal vopnuð sérsveit.

Í ljós kom að skotvopni hafði verið beitt gegn tveimur einstaklingum, þar sem einn var látinn og annar særður. Aukinheldur fannst meintur gerandi skotárásarinnar einnig látinn á vettvangi. Í framhaldi að hlúð var að hinum slasaða og vettvangur tryggður var lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra gert viðvart um málið en rannsókn sakamálsins er í höndum hans samkvæmt reglugerð nr. 660/2017 um stjórn lögreglurannsókna o.fl. Annað viðbragð var einnig virkjað, þar á meðal áfallateymi Rauða krossinn í umdæminu.

Hinum slasaða var komið með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Á þessu stigi er ekki vitað um líðan hans. Tekið skal fram að ekki kom til þess að lögreglan þyrfti að grípa til vopna vegna atviksins. Tveir eru í haldi lögreglu vegna málsins. Að svo stöddu mun lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra ekki tjá sig um málið sem er á viðkvæmu stigi.

Gert er ráð fyrir að embættið muni senda frá sér aðra fréttatilkynningu kl. 18 í dag.
Birgir Jónasson,
lögreglustjóri á Norðurlandi vestra.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    80 deilingar
    Share 32 Tweet 20
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Lýst var eftir Hlyni Gíslasyni

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?