• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 8. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkisstjórn Kristrúnar láti aðra en atvinnulausa fjármagna sparnaðinn

Ríkisstjórn Kristrúnar láti aðra en atvinnulausa fjármagna sparnaðinn

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. september 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum:

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) mótmælir harðlega þeim áformum stjórnvalda að skerða atvinnuleysistryggingar og skorar á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að láta aðra en atvinnulausa greiða fyrir sparnaðartillögur ríkisstjórnarinnar.  

Bein réttindaskerðing er ekki hagræðing eða ráðdeild í ríkisfjármálum.

Umrædd áform bætast nú við miður ígrunduð áform ríkisstjórnarinnar um afnám jöfnunarframlags vegna örorkubyrði sem leiðir til beinnar skerðingar réttinda örorku- og ellilífeyrisþega í lífeyrissjóðum.

Atvinnulausir og aldraðir eru ekki breiðu bökin sem sanngjarnt er að beri byrðarnar af hagræðingu í ríkisrekstri.

Atvinnuleysistryggingar eru einn af hornsteinum afkomuverndar launafólks. Atvinnuleysistryggingum var upphaflega komið á fyrir baráttu verkalýðshreyfingarinnar eftir mikil átök og langt verkfall um miðbik síðustu aldar. Alla tíð síðan hefur verið viðurkennt að ekki yrði hróflað við þeim  grundvallarréttindum  nema í breiðri sátt við verkalýðshreyfinguna. Hagsmunir launafólks eru miklir og kerfið órjúfanlegur hluti af  grunngerð sveigjanlegs vinnumarkaðar hér á landi. Ríkisstjórnin hefur nú vikið harkalega af þessari braut með áformum  um styttingu bótatímabils atvinnuleysistrygginga um 12 mánuði auk umtalsverðrar þrengingar á ávinnslurétti tryggingarinnar.

Atvinnuleysistryggingar eru hluti af réttindum sem launafólk ávinnur sér með þátttöku á vinnumarkaði. Fyrir allan þorra fólks er mikið áfall að missa atvinnuna. Réttindakerfið á því fyrst og fremst að vera uppbyggilegt, tryggja afkomu, ráðgjöf og stuðning við virkni og atvinnuleit.

Verkalýðshreyfingin er nú sem endranær reiðubúin í viðræður um umbætur á atvinnuleysistryggingakerfinu. Rétt er að minna stjórnvöld á að starfshópur umendurskoðun laga um atvinnuleysistryggingar skipaður fulltrúum aðila vinnumarkaðarins  hefur ekki fengið tækifæri til að ljúka vinnu sinni og leggja fram tillögur eins og eðlilegt væri.

Miðstjórn ASÍ skorar á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að falla nú þegar frá einhliða áformum um að skerða réttindi atvinnuleitenda og sýna í verki að hér á landi sé þríhliða samstarf aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda  haft í heiðri.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    124 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    56 deilingar
    Share 39 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?