• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 11. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Breytingar á barnalögum endurspegla fjölbreytileika

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Dómsmálaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi um breytingar á barnalögum sem snúa að því að í barnalög verði bætt nýjum ákvæðum sem mæla fyrir um foreldrastöðu trans fólks og einstaklinga með hlutlausa kynskráningu.

Breytingarnar miða að því að tryggja réttindi foreldra sem breytt hafa skráningu kyns og gera þá jafnsetta öðrum foreldrum. Í frumvarpinu eru jafnframt lagðar til breytingar á núgildandi ákvæðum barnalaga sem snúa að því að kona sem samþykkir að tæknifrjóvgun fari fram á eiginkonu sinni eða sambúðarmaka verði talin móðir barns en ekki foreldri eins og núgildandi ákvæði laganna mælir fyrir um. Frumvarpið gerir auk þess ráð fyrir breytingum á tilteknum ákvæðum laga um fæðingar- og foreldraorlof, lögum um almannatryggingar og lögum um kynrænt sjálfræði.
Frumvarpið var unnið í samstarfi við forsætisráðuneytið og starfshóp sem var skipaður samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019. Frumvarpið tengist þeim frumvörpum sem forsætisráðherra hefur þegar mælt fyrir um breytingar á lögum um kynrænt sjálfræði ásamt breytingum á ýmsum lögum vegna breytinga á lögum um kynrænt sjálfræði.
„Með þessum breytingum erum við að tryggja að lagaumhverfið endurspegli betur raunveruleikann okkar og þann fjölbreytileika sem við höfum í samfélaginu. Á sama tíma og við fögnum fjölbreytileikanum getum við ekki haft lög sem ekki viðurkenna foreldrastöðu trans fólks og mismuna samkynja hjónum eftir kyni. Einnig er mikilvægt að huga að rétti barns til að vita uppruna sinn og fá upplýsingar um foreldra sína,“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra í framsöguræðu sinni.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

    Handtekinn fyrir ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni í Kópavogi

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst lítur brotin alvarlegum augum

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Lögreglan lýsir eftir Gabríel Douane Boama, 20 ára,

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Líkamsárás – gæsluvarðhald

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?