• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 26. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Íslendingar rændir arðinum af auðlindum sínum – Mótmæli á Austurvelli – Tónlist: Hatari

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. nóvember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Lýðræði ekki auðræði—Auðlindirnar í okkar hendur!

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar

Stjórnarskrárfélagið, Efling stéttarfélag, Samtök kvenna um nýja stjórnarskrá, Gegnsæi, samtök gegn spillingu, og hópur almennra borgara og félagasamtaka hefur tekið sig saman og flautað til mótmælafundar á Austurvelli n.k. laugardag, 23. nóvember klukkan 14.
Almenningur í Namibíu er rændur af íslenskri stórútgerð. Almenningur á Íslandi er rændur arðinum af auðlindum sínum. Tugir milljarða eru færðir árlega í vasa stórútgerða sem ættu að renna í sjóði almennings til uppbyggingar samfélagsins.
Katrín Oddsdóttir

Þórður Már Jónsson, lögmaður

Óréttlætið þrífst í skjóli úreltrar stjórnarskrár og pólitískrar spillingar. Stjórnmálaflokkar standa auðsveipir gagnvart sérhagsmunum örfárra sem náð hafa heljartaki á þjóðlífinu í skjóli lögverndaðs arðráns og ofsagróða. – Fjárhagsleg samskipti stórútgerða og stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka þarf að rannsaka og skera upp herör gegn skattaskjólum og peningaþvætti.
Alþingi bað landsmenn um tillögur að nýrri stjórnarskrá. Alþingi fékk umbeðnar tillögur og boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslu um þær. Yfir 2/3 hlutar kjósenda (67%) samþykktu að tillögurnar skyldu verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár. Síðan eru liðin sjö ár! Grafið er undan lýðræði í landinu með þjónkun við sérhagsmuni og ógnandi vanvirðingu gagnvart lýðræðislegum vilja kjósenda og endurteknum tilræðum við nýju stjórnarskrána.
Atli Þór Fanndal, blaðamaður

Fundarstjóri verður Katrín Oddsdóttir Ræðumenn verða: Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Atli Þór Fanndal, blaðamaður. Þórður Már Jónsson, lögmaður
og um tónlistina sér hljómsveitin HATARI
Kröfur:
I. Sjávarútvegsráðherra segi tafarlaust af sér embætti.
II. Alþingi lögfesti nýja og endurskoðaða stjórnarskrá
sem landsmenn sömdu sér og samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu 2012—Að sjálfsögðu með því auðlindaákvæði sem kjósendur samþykktu.
III. Arður af nýtingu sameiginlegra auðlinda landsmanna renni í sjóði almennings til uppbyggingar samfélagsins og til að tryggja mannsæmandi lífskjör allra.
Katrín Oddsdóttir, einn skipuleggjandi mótmælanna hefur þetta að segja um ástæðu mótmælafundarins:
„Á Íslandi viðgengst viðvarandi arðrán á auðlindum þjóðarinnar. Hagnaðurinn af sjávarauðlindinni gerir lítinn hóp ríkari með hverju árinu í staðinn fyrir að renna í okkar sameiginlegu sjóði. Þannig er farið gegn lögum sem segja að þjóðin eigi auðlindirnar. Samherjamálið sviptir hulunni af þessari staðreynd. Nú verðum við að bregðast við áður en leiktjöldin falla aftur og ná fram alvöru kerfisbreytingum. Samfélagið þarf á auðlindaarðinum að halda. Þorsteinn Már þarf ekki á meiri peningum að halda“.
Skipuleggjendur hvetja almenning til að mæta og sýna samstöðu í verki. Katrín, sem er meðal þeirra sem barist hafa ötullega fyrir nýju stjórnarskránni, leggur áherslu á að nú séu sjö ár frá því að þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram þar sem 2/3 hlutar kjósenda sögðu að leggja ætti nýju stjórnarskrána til grundvallar sem stjórnarskrá Íslands.
„Alþingi hefur markvisst hunsað þessa niðurstöðu sem er ekki bara óboðlegt heldur hreinlega ólíðandi í lýðræðisþjóðfélagi. Í nýju stjórnarskránni er auðlindaákvæði sem tryggir að þjóðin fái „fullt verð“ fyrir nýtingu á auðlindum sínum, eða með öðrum orðum markaðsverð. Þetta þýðir að vinavæðingin sem hefur einkennt sjávarútveginn á Íslandi undanfarna áratugi mun að öllum líkindum taka enda. Ef við horfumst í augu við spillinguna og það arðrán sem á sér stað á Íslandi á hverjum degi munum við finna kraftinn og samtakamáttinn sem þarf til þess að breyta þessu!“ segir Katrín Oddsdóttir.
Vinsælasta hljómsveit landsins, Hatari, mun troða upp á laugardaginn en liðsmenn sveitarinnar segja Samherja birtingarmynd síðkapítalismans

Fjölbreyttur hópur samtaka og stéttarfélaga setur nafn sitt við mótmælin. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir skipta öllu máli að almenningur standi saman: „Verkalýðsfélög eiga að standa með almenningi gegn ofurvaldi eignastéttarinnar. Verka og láglaunafólk hefur barist fyrir efnhagslegu réttlæti kynslóðum saman, oft með stórkostlegum árangri. Nú skiptir öllu máli að við stöndum saman og knýjum á um raunverulegar breytingar í íslensku samfélagi.“

Vinsælasta hljómsveit landsins, Hatari, mun troða upp á laugardaginn en liðsmenn sveitarinnar segja Samherja birtingarmynd síðkapítalismans: „Græðgi Samherja er tær birtingarmynd þeirra gilda sem síðkapítalisminn elur í brjósti ungra og efnilegra mógula og svikahrappa.“
Fyrir hönd skipuleggjenda.
Katrín Oddsdóttir,
formaður Stjórnarskrárfélagsins

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fékk Nóbelsverðlaun fyrir að benda á að kvótakerfið er rugl

    Fékk Nóbelsverðlaun fyrir að benda á að kvótakerfið er rugl

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Maður sem varð fyrir byssuskoti er látinn

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Lögreglan lokaði skemmtistað

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Hrungengi krónu – ESB og Evru aðild gengur ekki

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Ólöglegt að verslanir taki ekki við reiðufé

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?