Hugleiðingar veðurfræðings
Lægðin sem gekk yfir landið í gær er nú við vesturströnd Noregs. Hún hefur dýpkað talsvert síðasta hálfa sólarhringinn og mun valda illviðri í Norður-Evrópu í dag. Við sitjum hins vegar eftir í mun hægari norðvestan- og norðanátt, víða 5-13 m/s og él, en þurrt að kalla á Suðausturlandi. Frost 2 til 9 stig, en síðdegis dregur úr ofankomu og herðir á frosti.
Á morgun verður áttin breytileg, vindhraði yfirleitt svipaður og í dag og áfram él, en hægari og lengst af þurrt og bjart á Suður- og Suðvesturlandi. Talsvert frost víðast hvar. Spá gerð: 21.12.2023 06:27. Gildir til: 22.12.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Norðvestan og norðan 5-13 m/s og víða él, en þurrt að kalla suðaustanlands. Frost 1 til 9 stig. Úrkomuminna síðdegis og herðir á frosti. Breytileg átt 5-13 á morgun. Él norðan- og austantil, en lengst af þurrt og bjart á Suður- og Suðvesturlandi. Frost 3 til 17 stig, kaldast inn til landsins. Spá gerð: 21.12.2023 04:39. Gildir til: 22.12.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag (vetrarsólstöður):
Norðaustlæg eða breytileg átt, víða 5-13 m/s og snjókoma með köflum, en lengst af þurrt og bjart sunnan heiða. Frost 3 til 17 stig, kaldast inn til landsins.
Á laugardag (Þorláksmessa):
Austan 8-15 og víða líkur á éljum, en hægari norðaustanlands. Dregur úr frosti.
Á sunnudag (aðfangadagur jóla):
Norðaustan 10-18, en hægari á Austurlandi. Él um landið norðanvert, annars þurrt að mestu. Frost 0 til 8 stig. Dregur úr vindi síðdegis.
Á mánudag (jóladagur):
Breytileg átt og él, en þurrt að kalla um landið vestanvert. Herðir á frosti.
Á þriðjudag (annar í jólum):
Suðlæg eða breytileg átt og snjókoma með köflum. Frost 0 til 7 stig.
Á miðvikudag:
Norðaustlæg átt og dálítil él, en bjartviðri um landið suðvestanvert. Kólnar í veðri.
Spá gerð: 20.12.2023 21:08. Gildir til: 27.12.2023 12:00.