• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Eigandinn vill ekki selja Íslandsbanka

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. janúar 2021
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Pistill forseta – Þjóðin andvíg sölu á Íslandsbanka

Drífa Snædal formaður ASÍ

Í Bítinu á Bylgjunni í gær var rætt við félags- og barnamálaráðherra um frumvarp til nýrra starfskjaralaga. Verkalýðshreyfingin hefur lengi beðið eftir að ráðherrann uppfylli gefin loforð um að leggja fram slíkt frumvarp og að í anda yfirlýsingar stjórnvalda með Lífskjarasamningnum sé í því ákvæði um févíti vegna launaþjófnaðar atvinnurekenda.

Þannig fái launafólk sem brotið er á bætur í sinn hlut en í því felst raunverulegur fælingarmáttur. Í viðtalinu greindi ráðherra hins vegar frá því að til stæði að fela Vinnumálastofnun sérstakt hlutverk í þessum efnum, m.a. með sektarheimildum. Slíkt kann að vera gott og gilt en kemur aldrei í stað févítis. Af hálfu verkalýðshreyfingarinnar hefur ekki komið fram ákall um að hið opinbera taki að sér eftirlit með launagreiðslum. Því eftirliti er best komið hjá stéttarfélögunum, hér eftir sem hingað til.

Miðstjórn ASÍ ályktaði í vikunni um þau félagslegu undirboð sem enn og aftur er gerð tilraun til að framkvæma í flugrekstri á Íslandi, í þetta skipti í gegnum félagið Bluebird sem hefur sagt upp flugmönnum í miðri kjaradeilu. Slík mál eru aðför að vinnumarkaðnum og skýrt brot á vinnulöggjöfinni. Í þessari deilu er einnig vert að beina kastljósinu að ábyrgð Vinnumálastofnunar að fylgjast með starfsmannaleigum sem starfandi eru hér á landi og Bluebird nýtir sér sannanlega til að sniðganga skyldur sem atvinnurekendur þurfa að bera. Fyrirtækið starfar samkvæmt íslensku flugrekstrarleyfi og á því ekki að komast hjá reglum hins íslenska vinnumarkaðar.

Miðstjórnin ályktaði líka gegn sölu hlutar almennings í Íslandsbanka og í dag komu niðurstöður könnunar sem ASÍ lét gera meðal þjóðarinnar sem staðfestir andstöðu við þetta ferli. Skýr meirihluti er andvígur sölunni en innan við fjórðungur er fylgjandi henni. Að auki er afar skýr vilji til að stofna samfélagsbanka og voru meira en sex af hverjum tíu hlynnt því.

Það er augljóst mál að stjórnvöld eru ekki í takti við þjóðarvilja í þessu máli. Enn er unnið að því að keyra málið í gegn með hraði og áður en kosið verður í haust. En það er alveg kýrskýrt að þrýstingur á söluna kemur ekki frá almenningi. Hvaðan þá er von að spurt sé?

Góða helgi,
Drífa

https://gamli.frettatiminn.is/22/01/2021/opid-bref-til-fjarmala-og-efnahagsradherra/

Umræða
Share10Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    Nýtt flugfélag í Keflavík

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Eftirlýst kona handtekin

    97 deilingar
    Share 39 Tweet 24
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?