Matvælastofnun varar þá sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir sinnepi eða eggjum við neyslu á Hjónabakka, þorramatur fyrir tvo frá Múlakaffi. Fyrirtækið Múlakaffi hefur hafið innköllun með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Þeim sem ekki hafa ofnæmi eða óþol fyrir sinnepi og eggjum stafar ekki hætta af vörunni.
- Vörumerki: Múlakaffi
- Vöruheiti: Hjónabakki, þorramatur fyrir tvo
- Strikanúmer: 5694310450157
- Best fyrir dagsetningar: 17.01.2021 og 23.01.2021
- Framleiðandi: Múlakaffi
- Framleiðsluland: Ísland
- Dreifingaraðili: Múlakaffi
- Dreifing: Verslanir Krónunnar og Melabúðin
Neytendur sem keypt hafa vöruna geta skilað henni þar sem hún var keypt.
- Fréttatilkynning Múlakaffis
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
- Leiðbeiningar Matvælastofnunar um merkingu á ofnæmis- og óþolsvöldum
- Þessum upplýsingum átt þú rétt á – upplýsingaspjald Matvælastofnunar um merkingar matvæla
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook
Umræða