• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Eldra fólk vill hafa áhrif á eigið líf – Nauðsynlegt að eldri borgarar taki sæti á Alþingi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. febrúar 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Áskorun hefur verið send á alla stjórnmálaflokka að tryggja eldri borgurum sæti á lista sem gæti tryggt þeim þingsæti. Enda er það á Alþingi sem kjör og velferð eldri borgara eru ráðin. Að áskoruninni stendur formaður LEB ásamt formönnum nokkurra stærstu félaga eldri borgara innan vébanda LEB. Þá hafa öll aðildarfélög LEB verið hvött til að beita samskonar þrýstingi á stjórnmálaflokka í sínum kjördæmum.

ÁSKORUNIN: Eldra fólk vill hafa áhrif á eigið líf

 Efni: Nauðsynlegt að fleiri eldri borgarar taki sæti á Alþingi

Árið 2021 verða um 75.000 manns á Íslandi,  60 ára og eldri, þar af eru um 45.000  67 ára og eldri.  Þetta fólk krefst þess að fá rödd í samfélaginu. Við skorum á þinn stjórnmálaflokk að tryggja fólki úr þessum  aldurshópi sæti á framboðslistum flokksins fyrir Alþingiskosningarnar haustið 2021, þannig að fleiri raddir eldri kynslóðarinnar fái að heyrast í sölum Alþingis á næsta kjörtímabili.

Það er staðreynd að þeir sem eru komnir á eftirlaun í samfélaginu njóta margir hverjir ekki sömu réttinda og aðrir þegar kemur að því að hafa áhrif á eigin stöðu. Þeir hafa engan samningsrétt um kjör sín, alltof margir þeirra sem eldri eru hafa laun sem eru undir lágmarkslaunum í samfélaginu og búa við tvöfalt skattkerfi, bæði hjá  Ríkisskattstjóra og Tryggingastofnun ríkisins. „Ellilífeyrir“ frá TR er nú rétt um 266 þúsund krónur á mánuði. Það eru hins vegar fáir sem njóta hans að fullu  vegna mikilla skerðinga. Atvinnumarkaðurinn hafnar gjarnan eldra fólki og ýtir því út af vinnumarkaðinum, jafnvel áður en það nær lögboðnum eftirlaunaaldri.  Þessi hópur lifir hins vegar lengur við betri heilsu en áður og margir bæði vilja og geta haldið áfram starfi. Þessu virðist afskaplega lítill gaumur gefinn á löggjafarsamkundunni, því ekkert breytist ár eftir ár.

Fyrir hverjar kosningar heita frambjóðendur allra flokka því að bæta hag eldra fólks, en þegar kemur að því að semja stjórnarsáttmálana eftir kosningar, lenda málefni  eldri kynslóðarinar yfirleitt aftarlega á forgangslistanum.   Sveitarstjórnir hafa stofnað öldungaráð og það er tími til kominn að „öldungadeild“ verði sett á stofn við Alþingi íslendinga.

Sá tími er nefnilega liðinn þegar eldra fólk var fyrst og fremst „þakklátir þiggjendur“ sem höfðu sig lítt í frammi í þjóðfélagsumræðunni.  Eldra fólk í dag vill og ætlar sér að hafa áhrif á stöðu sína í samfélaginu. Fyrsta skrefið í þá átt er að  höfða til stjórnmálaflokkanna, að  þeir fjölgi fólki sem er komið á efri ár, á framboðslistum sínum í kosningunum í haust og sýni þannig í verki að þeir meti þekkingu og reynslu þessa fólks til jafns við þekkingu og reynslu annarra aldurshópa.  Eldra fólk hefur ekki áhuga á vera „uppá punt“ á listunum.  Það vill komast á þing til að hafa áhrif.

Samtök eldra fólks munu á næstu vikum óska eftir samtali við flokkinn um áherslur hans í málefnum þeirra í komandi kosningum.

F.h. aðgerðahóps eldra fólks:

Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður Landssambands eldri borgara.

Ingibjörg H. Sverrisdóttir formaður Félags eldri borgara í Reykjavík.

Ragnar Jónasson formaður Félags eldri borgara í Kópavogi.

Valgerður Sigurðardóttir formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði.

Stefanía Magnúsdóttir formaður Félags eldri borgara í Garðabæ.

Guðrún Eyjólfsdóttir formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum.

Ingólfur Hrólfsson formaður Félags eldri borgara í Mosfellsbæ.

Umræða
Share71Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?