• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 16. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

COVID-19: Fjöldamörk úr 50 í 200 manns og fleiri tilslakanir

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. maí 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tekur gildi mánudaginn 25. maí. Þar með verður allt að 200 manns heimilt að koma saman í stað 50 nú, heimilt verður að opna líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði og öllum veitingastöðum, þar með töldum krám og skemmtistöðum, og einnig spilasölum, verður heimilt að hafa opið til kl. 23.00. Hvatt er til þess að viðhalda tveggja metra nálægðarmörkum eftir því sem kostur er, eins og nánar er fjallað um í auglýsingunni. Auglýsingin er í fullu samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Ráðherra kynnti ákvörðun sína um breytingar á takmörkun á samkomum á fundi ríkisstjórnar í morgun.
Með nýrri auglýsingu verður framkvæmd tveggja metra reglurnar breytt nokkuð. Horft er til þess að vernda þá sem eru viðkvæmir með því að skapa þeim sem það kjósa aðstæður til að viðhalda tveggja metra fjarlægðarreglu. Þannig verði til dæmis á veitingastöðum, í leikhúsum og bíósölum boðið upp á að minnsta kosti nokkur sæti sem geri þetta kleift.
Á líkamsræktarstöðvum verður, líkt og á á sund- og baðstöðum, takmörkun á fjölda gesta sem miðast við að þeir séu aldrei fleiri en nemur helmingi af leyfilegum hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi. Eins og fram kemur í auglýsingunni verða áfram gerðar sömu kröfur um sótthreinsun og þrif almenningsrýma og hingað til.
Frá upphafi COVID-19 faraldursins hér á landi hafa greinst smit hjá rúmlega 1.800 einstaklingum. Undanfarið hefur nýsmitum fækkað verulega og hafa aðeins fimm einstaklingar greinst það sem af er maímánuði. Í minnisblaði sóttvarnalæknis segir að þær tilslakanir sem gerðar voru á samkomutakmörkunum 4. maí síðastliðinn virðist ekki hafa leitt til fjölgunar sjúkdómstilfella.
Ný auglýsing um takmörkun á samkomubanni gildir til 21. júní

  • Auglýsing um takmarkanir á samkomum
  • Minnisblað sóttvarnalæknis, dags. 20. maí
  • Leiðbeiningar sóttvarnalæknis fyrir sund- og baðstaði
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Grillmarkaðurinn er fyrsta flokks veitingastaður – Frábærar veitinga og þjónusta

    Alvarleg líkamsárás – tveir í gæsluvarðhaldi

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    59 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • ,,Það er eitthvað brotið í íslenska menntakerfinu“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Stórútgerðin greiðir himinhá veiðigjöld erlendis

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Samtök um karlaathvarf -„ekki réttu aðilarnir til að hljóta styrk“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?