Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði á fjölmennum fundi á Akranesi, um ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, þar sem fullt var út úr dyrum. Að hann hefði skilaboð til matvælaráðherra frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðismenn vilja að Svandís endurskoði ákvörðunina
Teitur segir þingflokk Sjálfstæðisflokksins hafa fundað í dag og það séu tilmæli Sjálfstæðismanna að matvælaráðherra endurskoði ákvörðun sína varðandi stöðvun hvalveiða. „Þetta er ekki boðlegt, þetta er skammarlegt gagnvart því fólki sem hér á í hlut. Hvernig komið er fram af slíkri vanvirðingu, skeytingarleysi, ekki eingöngu gagnvart lögunum eða stjórnarskránni heldur fólki sem á hér í hlut. Þetta gengur ekki upp,“ sagði Teitur Björn Einarsson.
Teitur Björn sagði að 150 til 200 manns hafi misst vinnuna vegna fyrirvaralausrar ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur. Um sé að ræða einu stærstu hópuppsögn sem farið hefur fram á Íslandi að undanförnu.
Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness var mjög harðorður vegna ákvörðunar matvælaráðherra um að stöðvaða veiðarnar á þriðjudag, degi áður en þær áttu að hefjast. Á annað hundrað starfsmenn hafi verið reiðubúnir fyrir vertíðina og þetta væri mikið áfall fyrir þá og samfélagið allt. Beint tekjutap starfsmanna væru á annan milljarð fyrir utan launatengd gjöld og sveitarfélagið tapaði einnig miklum fjármunum vegna þessara aðgerða ráðherrans.
Fyrirspyrjendur úr sal, lýstu almennri furðu sinni á ákvörðun matvælaráðherra og skoruðu á Svandísi að draga ákvörðunina til baka.
Umræða