• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Hvert fóru 685 milljónirnar sem frúin í Hamborg gaf SUS plebbunum?"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. júlí 2020
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

,,Virðist sem alvarleg umboðssvik hafi verið framin í viðskiptum með almenningshlutafélagið“

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR flettir ofan af braski og bralli tengdum viðskiptum við lífeyrissjóði ofl. Kafli 3

Atlaga SA gegn mér og stjórn VR, þar sem þau krefja fjármálaeftirlitið um aðgerðir, fyrir að hafa skoðun á því hvernig lífeyri okkar er ráðstafað er að mörgu leiti athyglisverð.
Tjáningafrelsið er stjórnarskrárvarinn réttur okkar og annara borgara þessa lands og áskilur stjórn VR sér að geta haft hvaða skoðun á hvaða málum sem er, jafnvel þó þær skoðanir falli ekki í kramið hjá Samtökum atvinnulífsins eða Fjármálaeftirlitsins.
En aðför SA er áhugaverð í ljósi þess að þeir nefna ekki Alþýðusambandið í þessari vegferð sem kom með sambærilegar yfirlýsingar og við.
Af hverju ætli það sé?
Getur verið að SA sé að afvegaleiða umræðuna frá þeim spillingarmálum sem ég hef bent á síðustu daga þar sem helstu persónur og leikendur eru þeir sjálfir?

Fjölmörgum spurningum er ósvarað – viðbjóðsleg spilling ríkir í okkar samfélagi 

Eitt er víst að fjölmörgum spurningum er ósvarað varðandi viðskiptin með Lindarvatn ehf. þar virðist sem alvarleg umboðssvik hafi verið framin í viðskiptum með almenningshlutafélagið Icelandair við Lindarvatn ehf. og hvaða skýringar eru á því hvert 685 milljónirnar fóru sem frúin í Hamborg gaf SUS plebbunum í snúningnum. Og hvort það sé rétt ályktað að Icelandair undir stjórn núverandi og fyrrverandi stjórnenda Icelandair og SA hafi tapað rúma 1,8 milljarða á viðskiptunum?
Atvinnulífið hefur farið ránshendi um lífeyrissjóði landsmanna árum og áratugum saman í skjóli eftirlitsleysis, meðvirkni verkalýðshreyfingarinnar og ítaka SA í stjórnum lífeyrisjóðanna.
Nú þegar gerðar eru tilraunir til að fletta ofan af viðbjóðslegri spillingu sem ríkir í okkar samfélagi stíga þessir snillingar fram og segja að trúverðugleiki Fjármálaeftirlitsins sé undir í málinu.
Fyrir það fyrsta þarftu að hafa trúverðugleika til að geta tapað honum.
Þegar ég tók við sem formaður VR hafði ég skrifað mikið um spillinguna innan lífeyrissjóðakerfisins og átt fjölda funda með eftirlitsaðilum vegna mjölmargra mála þar sem alvarlegar brotalamir blöstu við.

Hugarfar ráðandi afla sem ég hef ekki áður séð

Eitt af stóru vandamálunum er meðvirknin og aðgerðarleysi eftirlitsaðila og stjórna lífeyrissjóða í að taka á slíkum málum sem iðullega eru þögguð í kaf því þau eru svo óþægileg eða stjórnarmenn SA innan lífeyrissjóðanna beita neitunarvaldi eða framtaksleysi í að þau verði skoðuð frekar eða kærð.
Og trúið mér að það er af nægu að taka í þessum efnum.
Hvað hafa lífeyrissjóðirnir farið í mörg skaðabótamál eða leitað réttar síns síðustu ár, við tökum bankahrunið með?
Þegar ég fór í formannsstólinn hafði ég ákveðnar hugmyndir um spillinguna í íslensku samfélagi sem ég vissi að væri mikil.
En það sem ég hef orðið vitni að í starfi mínu þessi ár er svo yfirgengilegt að erfitt er að lýsa með orðum.
Þetta er svo miklu verra heldur en mig hafði nokkurn tíma grunað og það sem verra er að ný kynslóð eins og sú sem kemur fram undir forystu SA hræðir mig mjög en þar er hugarfar ráðandi afla sem ég hef ekki áður séð.

Skora á Fjármálaeftirlitið og Héraðssaksóknara

Ég vil nota tækifærið og skora á Fjármálaeftirlitið og Héraðssaksóknara að taka til skoðunar viðskipti Icelandair og Lindarvatns ehf. Einnig að kanna hvort stjórnir félaganna og þá mögulega stjórnir lífeyrissjóða hafi framið umboðssvik með aðgerðarleysi sínu.
Ég skora á Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóra SA að setjast niður með mér og gera samkomulag um að hvorki SA né verkalýðshreyfingin kjósi stjórnir sjóðanna heldur verði það gert af sjóðfélögum sjálfum.
Ég mun svo halda áfram þar sem frá var horfið og fjalla um fleiri mál sem tengjast þessum snillingum en þá mun ég senda frá mér uppskriftina af því hvernig sjallarnir græða 850 milljónir, og grilla á kvöldin, með því að selja almenningshlutafélaginu Festi, sem er í eigu lífeyrissjóðanna, 3 ára fyrirtæki, sem framleiðir ekki neitt, á 30 faldri ebitda en þar koma við sögu m.a. Magnús Júlíusson fyrrum formaður sambands ungra sjálfstæðismanna og fleiri góðir gestir.

Kaflar númer eitt og tvö eru hér að neðan:

,,Stjórnendur félagsins hafa lagt sig mikið fram við að fela raunverulega stöðu gagnvart fjárfestum og almenningi“

https://gamli.frettatiminn.is/stjornendur-felagsins-hafa-lagt-sig-mikid-fram-vid-ad-fela-raunverulegu-stodu-gagnvart-fjarfestum-og-almenningi/

Ágætis byrjun að skoða braskið og brallið

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    156 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    100 deilingar
    Share 40 Tweet 25
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?