Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir Ílónu Steinunni Körting Kristinsdóttur
Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir Ílónu Steinunni Körting Kristinsdóttur, 30 ára, til heimils á Akureyri. Hún er u.þ.b. 170 sm á hæð, í meðallagi vaxin, með dökkt axlarsítt hár og með húðflúr á aftanverðum hálsi við hægra eyra. Hún er líklega klædd í dökkan fatnað. Þá dökkan jakka, gráar buxur, með ljósa prjónahúfu og svarta skó með hvítum botni.
Leitað er úr lofti og á landi
Jón Valdimarsson, aðalvarðstjóri á Akureyri, segir að vísbendingar um að Ílóna hafi verið á leiðinni frá Akureyri til Húsavíkur gærkvöld. Biðlar hann sérstaklega til fólks sem var á þessari leið á milli klukkan 19.20 og 21.00 í gærkvöld, þriðjudagskvöld, að íhuga, hvort það hafi mögulega hitt hana eða séð og hafa samband við lögreglu tafarlaust ef svo er. Björgunarsveitir víða að af Norðurlandi, allt frá Siglufirði austur til Húsavíkur, voru kallaðar út í gærkvöld og hófst leit á miðnætti. Leitað er úr lofti og á landi og fer leitarfólk um svæðið jafnt gangandi sem akandi og einnig eru notaðir drónar við leitina. Jón segir að stutt hlé hafi verið gert á leitinni laust fyrir sex í morgun til að hvíla mannskapinn og fara yfir stöðuna, en leit hefst á ný innan skamms.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ílónu, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.
Síðasta mynd sem til er af Ílónu, sýnir klæðnað hennar en ekkert hefur spurst til hennar síðan á mánudagskvöld