• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Katrín var heima þegar fréttir bárust af sprengingum í stjórnarráðshverfinu í Osló

,,Fjöldamorðin í Útey voru glæpur gegn mennskunni. Börn og ungmenni létu lífið í nafni öfgasinnaðrar hægri-þjóðernisstefnu"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. júlí 2021
in Erlent, Fréttir
A A
0

Tíu ár frá hryðjuverkunum í Útey

Katrín Jakobsdóttir skrifar um fjöldamorðin í Útey 

Í júní 2011 eignaðist ég minn þriðja og yngsta dreng. Ég gegndi þá embætti mennta- og menningarmálaráðherra í ríkisstjórn Íslands. Ísland hafði nýlega gengið í gegnum alvarlega fjármálakreppu og bankahrun og verkefnin í ríkisstjórninni ærin. Drengurinn minn var óvæntur sólargeisli sem ekki veitti af á erfiðum tímum og nokkrir mánuðir í fæðingarorlofi voru kærkomnir. Eins og foreldrum finnst almennt fannst okkur hann vera sannkallað kraftaverk, vitnisburður um fegurð mennskunar.

Ég var því heima þegar fyrstu fréttir bárust af sprengingum í stjórnarráðshverfinu í Osló. Ég sat límd við norskar fréttir eftir það enda sem betur fer ekki á hverjum degi sem slíkar fréttir berast frá vina- og frændþjóðum okkar. Fréttirnar áttu síðan eftir að verða miklu skelfilegri.
Í dag velti ég fyrir mér hvar þau væru núna, þessi 77 ljós sem slökknuðu fyrir 10 árum, yfirgnæfandi meirihluti táningar. Hvert allir þessir lífsþræðir sem skyndilega og sorglega voru rofnir hefðu legið og hvað þeir hefðu lagt til umhverfis síns, fjölskyldu, samfélags, heimsins.

Kjarnasetning okkar samfélags er að hver manneskja sé dýrmæt og við leggjum mikið á okkur til að tryggja að allir fái notið sín. Við erum mörg og ólík og styrkur okkar er samheldnin. Í stóráföllum sjáum við vanmátt okkar og leitum ósjálfrátt til hvors annars. Við snertums og föðmumst, finnum að það veitir okkur styrk. Við erum sterkari saman. Við höfum verið minnt rækilega á það seinustu misserin hvað þetta skiptir miklu máli.

Hvert þeirra sem dó 22. júlí 2011 lagði til þráð í vef samfélagsins og gerði hann þéttari, hlýrri og máttugri. Og orð þeirra og gerðir eru enn hluti af samfélaginu. Snertingin, líf þeirra og ljósið sem þau komu með lifir áfram. Þannig er dagurinn í dag áminning um að vinna stöðugt að því að skapa kærleiksríkt samfélag fjölbreytileika á sama tíma og hann er þungur í sinni.

22. júlí minnir okkur á að að frjáls, opin og jöfn samfélög eru ekki sjálfgefin og fást ekki baráttulaust. Allt okkar starf er stöðug varðstaða um þau gildi sem gera okkur að því sem við erum. Hann minnir líka á tengslin. Minnir á að orðið frændþjóð hefur merkingu og innihald. Við erum og verðum fjölskylda.

Fjöldamorðin í Útey voru glæpur gegn mennskunni. Börn og ungmenni létu lífið í nafni öfgasinnaðrar hægri-þjóðernisstefnu. Börn og ungmenni sem öll voru kraftaverk í augum foreldra sinna. Börn og ungmenni sem voru vitnisburður um fegurð mennskunnar. Nú þegar við minnumst þessara voðaverka þá skulum við sammælast um að standa vörð um mennskuna. Gleymum aldrei að ekkert dugir gegn slíkum voðaverkum nema samstaða góðra manna um að leyfa þeim ekki að gerast. Það gerum við til að heiðra minningu þeirra sem dóu í Útey en líka til að verja börn og ungmenni dagsins í dag.

– Birtist í dag á norsku á fréttamiðlinum Trønderdebatt.

https://gamli.frettatiminn.is/22/07/2021/mordin-i-utey-i-nafni-nafni-ofgasinnadrar-haegri-thjodernisstefnu/

Umræða
Share12Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    183 deilingar
    Share 73 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?