Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni í morgun. Þetta kemur fram á vef mbl.is
„Ég get staðfest að vistmaður á Litla-Hrauni fannst látinn við opnun klefa í morgun. Ekkert bendir til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti en lögreglan sér um rannsókn. Páll bætir við að um harmleik sé að ræða og að bæði vistmenn og starfsmenn fangelsisins séu harmi slegnir. ” sagði Páll Winkel fangelsismálastjóri í viðtali við Morgunblaðið.
Aðstandendum hins látna hefur verið tilkynnt um andlátið.
Umræða