Fram kemur á RÚV að eldri hjón fundust látin í heimahúsi í Neskaupstað í nótt. Ekki hefur fengist staðfest hvernig andlát þeirra bar að en lögregla leitaði eins manns vegna málsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu tók maðurinn bíl hjónanna í nótt.
Viðbúnaður var á Snorrabraut í Reykjavík, en lögregla lokaði umferð við Eiríksgötu á þriðja tímanum og stýrði aðgengi á svæðinu. Einn var handtekinn samkvæmt heimildum fréttastofu í aðgerðunum og mun sá tengjast málinu í Neskaupsstað.
Lögreglan á Austurlandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu um málið klukkan 15.18.
Lögreglan á Austurlandi rannsakar nú alvarlegt atvik í heimahúsi á Norðfirði. Tveir hafa verið úrskurðaðir látnir. Einn verið handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. Ekki er grunur um að fleiri tengist málinu.
Ekki er hægt að gefa frekari upplýsingar að svo stöddu.
Umræða