Um sexleytið í gær var lögreglan kölluð að Sky Lagoon í Kópavogi vegna karlmanns á þrítugsaldri sem hafði misst meðvitund.
Endurlífgunartilraunir hófust strax á vettvangi og var maðurinn, sem var gestkomandi á staðnum, síðan fluttur á Landspítalann, en hann lést svo þar í gærkvöld.
Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Umræða