Uppfært: Riða á bænum Stóru-Ökrum 1 í Akrahreppi í Skagafirði hefur verið staðfest. Undirbúningur niðurskurðar fjár á bænum stendur yfir. Matvælastofnun ítrekar að allur flutningur líffjár (sauð- og geitfjár) innan Tröllaskagahólfs er bannaður. Beðið er eftir niðurstöðum sýna úr sauðfé sem flutt var frá bænum til annarra bæja innan varnarhólfsins.
Sterkur grunur var um riðuveiki á Stóru-Ökrum 1 (Brekkukoti) í Akrahreppi í Skagafirði þann 16. oktober s.l. Matvælastofnun hefur sett bann á allan flutning líffjár (sauð- og geitfjár) innan Tröllaskagahólfs til bráðabirgða þar til greining hefur verið staðfest. Í dag var riðuveikin svo staðfest.
Bóndinn hafði samband við starfandi dýralækni sem tilkynnti héraðsdýralækni um kind með einkenni riðuveiki. Héraðsdýralæknir skoðaði kindina sem síðan var aflífuð, sýni tekin og send til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum. Bráðabirgðaniðurstöður liggja fyrir sem benda sterklega til að um riðuveiki sé að ræða en staðfesting mun liggja fyrir eftir helgi.
Búið er í Tröllaskagahólfi og á svæði þar sem ekki hefur greinst riða síðan árið 2000. Á búinu er nú um 500 fullorðið fé auk um 300 lamba.
Á meðan beðið er eftir staðfestingu vinnur héraðsdýralæknir að undirbúningi aðgerða og öflun faraldsfræðilegra upplýsinga.
Upplýst verður um staðfestingu riðugreiningar um leið og hún liggur fyrir.