• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Guðmundur Ingi vígir Batahús fyrir konur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. október 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, vígði í gær nýtt úrræði, Batahús, fyrir konur sem lokið hafa afplánun. Um er að ræða áfangaheimili og stuðningsúrræði fyrir konur sem verið hafa í réttarvörslu og þarfnast stuðnings við að verða virkir þátttakendur í samfélaginu á ný.

Guðmundur Ingi benti í ávarpi sínu við opnunina á að löngu tímabært væri að konum stæði til boða úrræði sem þetta og lagði áherslu á mikilvægi þess að þær upplifðu sig öruggar, fengju stuðning og ráðgjöf og ekki síst tækifæri til sjálfsstyrkingar og valdeflingar. Margt við lestur nýlegrar rannsóknar um reynsluheim kvenna í íslenskum fangelsum hafi slegið hann.

„Langflestar kvennanna áttu það sameiginlegt að búa yfir áfallasögu. Þær höfðu leitað sér aðstoðar vegna vímuefnavanda, höfðu misst frá sér börn, verið beittar ofbeldi, glímt við heilsufarsvanda og svo mætti áfram telja. Konur með slíka reynslu að baki fara ekki svo auðveldlega út í samfélagið á ný, með einungis kvíða og vonleysi í farteskinu,“ sagði ráðherra.

Guðmundur Ingi undirstrikaði að það að fóta sig að nýju úti í samfélaginu að lokinni afplánun væri mörgum mikil áskorun og að augljós þörf væri fyrir úrræði þar sem konum í slíkri stöðu væri mætt af virðingu og kærleik og þar sem þær fengju stuðning til að undirbúa sig fyrir þær áskoranir sem þær myndu mæta.

Stofnun Batahússins byggir á skýrslu sem starfshópur á vegum félagsmálaráðherra skilaði árið 2019. Þar var talin þörf á frekari úrræðum fyrir fanga eftir afplánun þar sem fá mætti húsaskjól gegn vægu verði og aðstoð til að vinna gegn fíknivanda og endurteknum afbrotum.

Í janúar 2021 var Batahús fyrir karla opnað en nýja Batahúsið er sem fyrr segir fyrir konur.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun vegna veðurs

    Viðvörun vegna veðurs

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Lögreglan leitar manns

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?