• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lögreglustöðin við Hverfisgötu

Færri kynferðisbrot tilkynnt til lögreglu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. nóvember 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0
  • Umtalsverð fækkun tilkynninga um kynferðisbrot til lögreglu.
  • 34% færri nauðganir tilkynntar á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra.
  • Ekki jafn fáar nauðganir tilkynntar til lögreglu á tímabilinu 2010-2023.

Ný skýrsla ríkislögreglustjóra um kynferðisbrot hefur verið birt á vefsvæði lögreglunnar. Í skýrslunni má finna upplýsingar um tilkynningar til lögreglu vegna kynferðisbrota fyrstu níu mánuði ársins 2023. Lögreglan skráði tilkynningar um 126 nauðganir fyrstu níu mánuði ársins 2023 en til samanburðar voru tilkynntar 191 nauðgun á sama tímabili í fyrra. Samsvarar það 34% fækkun tilkynninga. Að meðaltali eru núna skráðar tilkynningar um 14 nauðganir, á mánuði hjá lögreglunni.

Í málaskrá lögreglunnar vegna kynferðisbrota er bæði skráð hvenær brot eru tilkynnt og hvenær þau áttu sér stað. Ástæða þess er að í kynferðisbrotum líður oft tími á milli þess að brotið á sér stað og tilkynnt er um það til lögreglu. Þegar horft er til tíma brots, var tilkynnt um 89 nauðganir sem áttu sér stað fyrstu níu mánuði ársins eða 10 nauðganir á mánuði, sem samsvarar 45% færri brotum frá sama tímabili í fyrra.

Lögreglan skráði í allt 388 tilkynningar um kynferðisbrot á tímabilinu, sem samsvarar tæplega 21% fækkun tilkynninga á milli ára og 1,4 tilkynningum til lögreglu að meðaltali á dag. Öllum tegundum skráðra kynferðisbrota fækkar samanborið við sama tímabil í fyrra og ekki hafa jafnfáar nauðganir verið tilkynntar til lögreglu á tímabilinu 2010 til 2023 sem skýrslan nær yfir.

Meðalaldur sakborninga í kynferðisbrotamálum er 35 ár. Um 94% grunaðra í kynferðisbrotum eru karlar, meirihlutinn á bilinu 18-45 ára. Meðalaldur brotaþola kynferðisofbeldis er 23 ár og eru 86% brotaþola konur í öllum slíkum málum tilkynntum til lögreglu.

Ætíð er hægt að tilkynna mál til lögreglunnar í 112.

Þá má finna upplýsingar þar um þau úrræði sem eru til staðar vegna kynferðisofbeldis á landsvísu og leiðarvísir um réttarvörslukerfið fyrir þolendur á  ofbeldisgátt 112.
——

Upplýsingar um skýrsluna eru aðgengilegar á síðu lögreglunnar um tölfræði vegna kynbundins ofbeldis.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    180 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?