Sannkölluð gleðisýning eftir drepfyndinn leikhóp Þjóðleikhússins
Bráðfyndið nýtt verk, samið af mörgum fremstu gamanleikurum þjóðarinnar úr leikhópi Þjóðleikhússins, unnið upp úr missönnum sögum af útilegum á Íslandi þar sem allt fer í steik. Hér er unnið með list leikarans og samband hans við áhorfendur af hugmyndaauðgi, fjöri og hæfilegu kæruleysi, um leið og þjóðarsálin er krufin. Óborganlegar aðstæður sem við þekkjum öll – alltof vel.
Áhorfendur kunnu vel að meta sýninguna sem var kómísk og farsakennd, létt grín og glens um þær aðstæður sem flestir íslendingar þekkja, þ.e. að stóla á íslenskt veðurfar og þjónustu. Sprenghlægileg atriði koma á færibandi í sýningunni, þar sem gestir í fullum sal hlógu sig máttlausa, sem og vel heppnuð dramatísk atriði eru í söguþræðinum. Sviðsmyndin er vel gerð og vakti sérstaka athygli. Eltum veðrið er mjög góð og fyndin skemmtun sem Fréttatíminn mælir með.
Sýning um þjóðaríþrótt okkar Íslendinga: Að elta veðrið!
Útilegan þar sem allt fer í steik
Skrautlegur vinahópur heldur í sína árlegu útilegu þar sem allt þarf að vera á sínum stað – rétta stæðið fyrir hjólhýsin, moðsteikta holulambið, sándboxið og allt hitt. En nú er samt ekkert eins og það var, því það vantar eina í hópinn. Hver og einn er með sínar hugmyndir um það hvernig eigi að bregðast við nýrri stöðu og hin árlega samkoma vinahópsins tekur óvænta og stórvarasama stefnu. Veit Hjálmar um öskuna? Nær Guðrún að loka stóra málinu? Mun viðhafnarnámið nýtast Andra á toppnum? Þarf að fela vínið fyrir Rögnu? Og er David Clark allur þar sem hann er séður?
Sýningin sjálf hitti svo rækilega í gegn hjá leikhúsgestum sem hlógu sig máttlausa og um er að ræða mjög góða afþreyingu: Salan hefur verið upp úr þakinu undanfarna daga. Og talandi um það… hví ekki að: Kaupa miða