• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Viðræður hefjast um sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst

Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Bifröst.

Styrkir til sameiningar Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst

Styrkir til stofnunar nýs rannsóknasjóðs sameinaðs háskóla

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. janúar 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið veitir Háskólanum á Akureyri og Háskólanum á Bifröst 250 milljóna króna stofnframlag í nýjan rannsóknasjóð sameinaðs háskóla auk 200 milljón króna styrks til að undirbúa sameiningu skólanna.

Háskólinn á Akureyri (HA) og Háskólinn á Bifröst (HB) sendu á haustdögum 2023 sameiginlega umsókn til ráðuneytisins um fjármagn til að vinna að auknu samstarfi og mögulegri sameiningu skólanna. Umsóknin var liður í áherslum ráðuneytisins um aukið samstarf og mögulega sameiningu háskóla á Íslandi. Í umsókn HA og HB kom fram að samruni skólanna myndi styrkja háskólamenntun hér á landi til muna og um leið samkeppnisstöðu landsins í síbreytilegum heimi örrar tækniþróunar. 

Á haustdögum 2023, var settur á fót stýrihópur á vegum háskólanna tveggja sem vinna skyldi að fýsileikagreiningu um aukið samstarf og hugsanlega sameiningu þeirra. Í skýrslu stýrihópsins, sem skilað var til ráðherra í desember 2023, kom m.a. fram að sameining háskólanna gæti leitt til stóraukinna tækifæra í rannsóknastarfi um allt land. Í því sambandi væri stofnun rannsóknasjóðs sameinaðs háskóla lykilatriði í því skyni að styrkja rannsóknateymi og stoðþjónustu rannsókna og skapa aukin tækifæri til sóknar í alþjóðlega sjóði og þátttöku í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum.

Framlag ráðuneytisins nú er til að unnt sé að setja sjóðinn á laggir sem allra fyrst óháð annarri fjármögnun en bundnar eru vonir við að sjóðurinn geti vaxið umtalsvert til lengri tíma. M.a. verður unnið að því að hluti af söluandvirði eigna Háskólans á Bifröst renni til hans. Jafnframt verður leitast eftir stuðningi atvinnulífsins sem sameinaður háskóli ætlar sér að vinna náið með.

Sameinaður háskóli yrði álíka stór og Háskólinn í Reykjavík m.t.t. nemendafjölda, með um 3.500 nemendur og 300 starfsmenn og mikla vaxtarmöguleika, þökk sé faglegri stefnumótun, öflugu gæðakerfi og leiðandi stöðu á sviði fjarnámstækni. Þá myndi það styrkja samkeppnisstöðu sameinaðs háskóla enn frekar að báðir háskólarnir bjóða í dag námsleiðir og rannsóknir sem ekki er til að dreifa hjá öðrum háskólum hér á landi. Myndi sú sérstaða jafnframt nýtast til enn frekari sóknar og uppbyggingar á nýjum námsbrautum og námsgreinum. Þá hafa báðir skólarnir verið brautryðjendur í stafrænu fjarnámi og sameinaður háskóli gæti þannig orðið til þess að stórauka aðgengi að háskólanámi á öllum stigum, án tillits til búsetu, aldurs, bakgrunns eða atvinnuþátttöku. Að sama skapi hefði sameinaður háskóli burði til að vera umbreytandi afl í íslensku þjóðlífi og gæti stuðlað að auknu jafnrétti til náms á Íslandi með því að bæta aðgengi fjölbreyttra hópa að háskólanámi.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fagnar niðurstöðum greiningarvinnu stýrihópsins og þeim metnaði sem fram kemur í vilja og hugmyndum beggja skóla um samstarf sín á milli. Í því skyni hefur ráðherra ákveðið að veita 250 milljóna króna stofnframlag til nýs rannsóknasjóðs sameinaðs háskóla, til að veita brautargengi þeim rannsóknatækifærum sem falist geta í sameinuðum háskóla HA og HB. Auk þess mun ráðuneytið veita 200 milljónum króna til að vinna að þeim verkefnum sem snúa að undirbúningi sameiningar háskólanna.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?