• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

COVID-19: Sóttvarnir á landamærum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. mars 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að herða sóttvarnaráðstafanir á landamærum í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Meginreglan verður að börn fædd 2005 eða síðar fari í sýnatöku á landamærum og sæti fimm daga sóttkví. Þá skulu allir sem koma frá löndum þar sem nýgengi smita er yfir tilteknum viðmiðum dvelja í sóttvarnahúsi meðan á fimm daga sóttkví stendur, nema þeir hafi framvísað gildu bólusetningarvottorði eða vottorði um fyrra smit. Reglugerð heilbrigðisráðherra um þessar breytingar tekur gildi 1. apríl og gildir til loka mánaðarins.

Smitum fjölgar á landamærunum

Smit hafa verið fá innanlands að undanförnu en hefur fjölgað á landamærum og hafa suma daga greinst allt að 10 einstaklingar. Í minnisblaði sóttvarnalæknis segir að flestir þeirra hafi framvísað neikvæðu PCR prófi við komu og reynst neikvæðir við fyrri sýnatöku á landamærum en greinst með smit í síðari sýnatökunni. Þetta bendi til þess að margir hafi smitast skömmu fyrir komuna til landsins og sé ástæðan án efa mikil útbreiðsla COVID-19 í flestum grannríkjum okkar. Sóttvarnalæknir telur hættu á því að faraldur breiðist út innanlands einkum stafa af smitum á landamærum. Því sé áríðandi að beita áhrifaríkum aðgerðum þar til að lágmarka hættuna.

Aðgerðir sem taka gildi 1. apríl:

Sýnataka hjá börnum fæddum 2005 og síðar: Öll börn fædd 2005 eða síðar skulu fara í sýnatöku á landamærunum. Börn á þessum aldri sæta aðeins sóttkví ef þau ferðast með foreldrum, forráðamönnum eða einhverjum öðrum sem skylt er að fara í sóttkví samkvæmt gildandi reglum.
Ekki er gerð krafa um að börn fædd 2005 eða síðar framvísi neikvæðu PCR-prófi við komu.

Íbúar frá áhættusvæðum dvelji í sóttvarnahúsi: Allir sem koma frá eða hafa dvalið á svæðum þar sem 14 daga nýgengi smita á hverja 100.000 í búa er yfir 500 skulu dvelja í sóttvarnahúsi meðan á sóttkví stendur, eða ef þeir þurfa að sæta einangrun vegna smits. Sama máli gegnir um einstaklinga sem koma frá löndum þar sem skortir upplýsingar um nýgengi smita. Þetta eru svæði sem Sóttvarnastofnun Evrópu skilgreinir annars vegar sem dökkrauð (nýgengi smita yfir 500), eða sem grá svæði (upplýsingar um nýgengi skortir).

• Yfirlitskort Sóttvarnastofnunar Evrópu um stöðu faraldursins eftir löndum og svæðum

Í minnisblaði sóttvarnalæknis er einnig lagt til að tímabundið verði einungis tekin gild vottorð um fyrri sýkingu eða bólusetningarvottorð frá löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins, Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada. Einnig er lagt til að allir skuli sæta einni sýnatöku við komuna til landsins, óháð því hvort þeir séu með gild vottorð um fyrri sýkingu eða bólusetningu. Heilbrigðisráðherra hefur ekki tekið afstöðu til þessara tillagna og verða þær ræddar í ráðherranefnd og ríkisstjórn í vikunni.

• Reglugerðin (verður birt innan skamms)
• Minnisblað sóttvarnalæknis

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    180 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?