Nýlega birti sóttvarnalæknir pistil um Listeríu í Farsóttarfréttum þar sem fram kom að 5 einstaklingar hafi greinst það sem af er árinu með sýkingu af völdum Listeria monocytogenes (listeriosis). Nú eru tilfellin orðin 6. Uppspretta sýkingarinnar í matvælum hefur ekki enn fundist. Meðgöngutími listeríu er oftast langur eða allt þrjár vikur og því oft erfitt að rekja uppruna smits þar sem fólk man ekki hvað það borðaði 3-4 vikum áður.
Listeria monocytogenes (hér eftir nefnd sem Listería) veldur einkum sjúkdómi meðal áhættuhópa. Áhættuhópar eru einstaklingar með skert ónæmiskerfi, einstaklingar á ónæmisbælandi lyfjum eða í krabbameinsmeðferð, barnshafandi konur og aldraðir. Í heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á matvælum sem eru menguð af Listeríu sjaldnast einkennum eða aðeins mildum flensueinkennum. Matvælastofnun vill hér auka meðvitund áhættuhópa og matvælafyrirtækja um fyrirbyggjandi aðgerðir gegn Listeríu.
Hvaða matvæli?
Listería getur fjölgað sér í matvælum í kæli við 4 °C og skiptir þá ekki máli hvort umbúðir eru lofttæmdar, loftskiptar eða ekki. Viðkvæm matvæli tilbúin til neyslu, með nokkurra vikna geymsluþol, geta verið áhætta ef þau hafa mengast af Listeríu í framleiðsluferlinu. Listería getur hins vegar ekki fjölgað sér í matvælum sem eru sýrð þannig að pH sé undir 4.5 eða söltuð / þurrkuð þannig að vatnsvirkni sé undir 0.92. Hér má nefna þurrskinku s.s parmaskinka, spægipylsur, pepperoni, og sýrðar mjólkurvörur.
Dæmi um matvæli sem Listería getur fjölgað sér í sé hún til staðar.
- Reyktur og grafinn fiskur.
- Kjötálegg, sem er skorið niður og pakkað eftir suðu ( t.d. skinka, paté, kæfa, og sviðasulta).
- Tilbúnir réttir, sem ekki eru hitaðir nægilega fyrir neyslu (t.d fiskibollur, kjötbollur, eldaður kjúklingur s.s naggar, strimlar, bollur).
- Ógerilsneydd mjólk / hrámjólk og mjólkurvörur framleiddar úr hrámjólk (t.d. mjúkostar).
- Frosið grænmeti, sem ekki er hitað fyrir neyslu.
- Niðurskornir ávextir og grænmeti með nokkurra daga geymsluþol.
- Aðrar matvörur sem eru tilbúnar til neyslu s.s. samlokur sem ekki eru hitaðar fyrir neyslu.
Erfitt er að koma alveg í veg fyrir Listeríu í hráum matvælum s.s. hráu kjöti, hrámjólk, hráum fiski og hráu grænmeti þar sem listeria er útbreidd í umhverfinu.
Hvað geta matvælafyrirtæki gert til að minnka líkur á Listeríu?
Ef Listería greinist í elduðum matvælum, sem eru tilbúnum til neyslu, bendir það til þess að matvælin hafi mengast í framleiðsluferlinu eftir hitameðhöndlun t.d frá skurðarvél, pökkunarvél eða færibandi eða matvælin hafa ekki fengið nægilega hitameðhöndlun.
Ef Listería berst inn í matvælafyrirtæki með hráefni eða vegna umgengni starfsmanna getur bakterían búið um sig í framleiðsluumhverfinu og falið sig í sprungum, holrýmum, undir borðum og slitnum færiböndum og orðið að einhvers konar „húsbakteríu“. Einnig getur hún myndað bíófilmu á yfirborðsflötum úr ryðfríu stáli og plasti ef ekki staðið vel að þrifum. Bíófilma myndast af þvi að bakterían festist á yfirborð á stöðum þar sem ekki hefur tekist að þrífa leifar af matvælum. Þar getur bakterían fjölgað sér og breiðst út í framleiðslumhverfinu. Ef bíófilma hefur myndast getur verið erfitt að fjarlægja hana og hætta er á að matvæli mengist af Listeríu. Það er því afar mikilvægt að vel sé staðið að þrifum í matvælafyrirtækjum á snertiflötum matvæla og í krókum og kimum og að viðhaldi sé vel sinnt svo bakterían geti ekki búið um sig í húsnæðinu.
Matvælafyrirtæki sem framleiða matvæli sem eru tilbúin til neyslu þurfa reglulega að vakta Listeríu í framleiðsluumhverfinu og í afurðum. Tíðni greininga er háð mati á því hve líklegt er að listería berist í matvælin og vaxtarskilyrða í matvælunum. Sjá nánari umfjöllun um listeríu greiningar fyrir matvæli tilbúin til neyslu.
Hvað geta neytendur gert til fyrirbyggja sjúkdóm af völdum Listeríu?
Neytendur eru hvattir til að hafa eftirfarandi í huga við meðhöndlun og geymslu viðkvæmra matvæla sem eru tilbúin til neyslu.
- Tryggja að hitastig í kæli sé ekki hærra en 4 °C.
- Koma mat í kæli fljótt eftir innkaup.
- Hafa í huga að ef hitastig fer yfir 4 °C í einhvern tíma er geymsluþol ekki skv. því sem stendur á umbúðum.
- Neyta ekki matvæla sem eru merkt með síðasta notkunardegi eftir þann dag.
- Hita tilbúna rétti upp í 75 °C.
- Skola vel grænmeti og ávexti.
Fólk í áhættuhópum (sjá ofar) ætti ekki að borða reyktan og grafinn fisk, drekka hrámjólk eða mjólkurvörur unnar úr hrámjólk eða borða kjötálegg sem er að nálgast síðasta notkunardag. Við upphitun á frosnu grænmeti og tilbúnum réttum s.s. fiskibollum, kjötbollum, og kjúklinganöggum verður að tryggja að hitastig nái a.m.k. 75 °C.