• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bláskelin: Ný viðurkenning fyrir framúrskarandi plastlausa lausn

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. maí 2019
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Umhverfisstofnun óskar eftir tilnefningum til nýrrar viðurkenningar sem hlotið hefur heitið Bláskelin. Viðurkenningin verður veitt fyrirtæki, stofnun, einstaklingi eða öðrum fyrir framúrskarandi lausnir sem stuðla að minni plastnotkun og plastúrgangi í samfélaginu.
Viðurkenningin er hluti af aðgerðum umhverfis- og auðlindaráðherra til að draga úr neikvæðum áhrifum plastnotkunar. Henni er ætlað að draga fram það sem vel er gert og hvetja til nýsköpunar. Sérstök úthlutunarnefnd velur viðurkenningarhafa en hana skipa fulltrúar frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtökum atvinnulífsins, Plastlausum september og Umhverfisstofnun.
Umhverfis- og auðlindaráðherra fékk í lok síðasta árs afhentar tillögur frá samráðsvettvangi sem hann skipaði um plastmálefni og voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi plastlausar lausnir þar á meðal. Af öðrum tillögum sem þegar hafa komið til framkvæmda má nefna átaksverkefni Umhverfisstofnunar til að auka meðvitund fólks um að draga úr notkun á einnota plastvörum og lög sem banna plastburðarpoka í verslunum frá og með 1. jan 2021.
„Plast í hafi er víðtækt vandamál og örplast hefur greinst í æ fleiri lífverum, þar á meðal bláskel. Með viðurkenningunni Bláskelinni berjumst við gegn plastmengun, höldum á lofti því sem vel er gert og hvetjum til nýsköpunar og frumlegra lausna – án plasts,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Meðvitund fólks um plastvandann hefur aukist mjög á skömmum tíma. Það er ótrúleg gróska í samfélaginu og fullt af flottum lausnum þarna úti. Að virkja þennan kraft er mjög mikilvægt.“
Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum fyrir Bláskelina. Fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.
Við val á verðlaunahafa er horft til eftirfarandi þátta:
• nýsköpunargildis viðkomandi lausnar
• dregur lausnin úr myndun úrgangs
• hvert er almennt framlag lausnarinnar til umhverfismála
• hvaða plastvöru er verið að komast hjá með lausninni
• hefur lausnin möguleika á að komast í almenna notkun
Tillögur skulu berast Umhverfisstofnun eigi síðar en 1. júlí næstkomandi, merktar „Tilnefning: Bláskelin“ á netfangið ust@ust.is eða með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
Umhverfis- og auðlindaráðherra mun veita viðurkenninguna þann 1. september 2019, á opnunarhátíð árvekniátaksins Plastlaus september.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?