Ráðstefnan, sem er fyrsti viðburðurinn sem tengist formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu, var skipulögð af Íslensk-ameríska viðskiptaráðinu í Bandaríkjunum, sendiráði Íslands í Washington, Efnahagsráði norðurslóða og Wilson Center’s Polar Institute í Washington. Þátttakendur voru bæði úr einkageiranum og opinbera geiranum frá Bandaríkjunum, Íslandi, Grænlandi og Noregi.
Guðlaugur tók þátt í pallborðsumræðum um fjárfestingar á norðurslóðum og hélt ræðu um formennskuáætlun Íslands. „Rauði þráðurinn í okkar formennskutíð verður sjálfbær þróun en við leggjum ríka áherslu á allar þrjár stoðir hugtaksins og samspilið þeirra á milli: sterk samfélög, öflugan efnahag og umhverfisvernd. Þessari sýn deilum við með Bandaríkjunum og því sérstök ánægja að þessi fyrsti viðburður sem Ísland tekur þátt í sem formennskuríki skuli eiga sér stað hér í höfuðborg landsins,“ sagði utanríkisráðherra að fundi loknum.
Í Bandaríkjunum er mikill áhugi á fjárfestingum á norðurslóðum, þar á meðal á Íslandi, en undanfarin fimm ár hefur rúmur þriðjungur erlendra fjárfestinga á Íslandi komið þaðan. Þá hafa íslensk fyrirtæki aukið umsvif sín á svæðinu undanfarin ár, til dæmis í sjávarútvegi í Alaska og fraktflutningum til og frá Grænlandi. Áætluð fjárfestingaþörf á norðurslóðum er talin nema um eitt þúsund milljörðum Bandaríkjadala og því ljóst að um veruleg tækifæri er að ræða, ekki síst á sviði innviðauppbyggingar.
Auk þátttöku í ráðstefnunni hélt Guðlaugur Þór fyrirlestur hjá Wilson Center’s Polar Institute-hugveitunni í Washington. Í ávarpi sínu þar fjallaði hann um formennskuáætlunina, stefnu Íslands í norðurslóðamálum, um samstarf norðurslóðaríkja og eflingu Norðurskautsráðsins. Að fundi loknum átti ráðherra fund með aðstoðarráðherra Bandaríkjanna fyrir málefni hafsins, Tim Gallaudet, þar sem þeir ræddu um samstarf um málefni hafsins og norðurslóðir.
Um leið og ráðstefnan fór fram var opnuð sýning á verkum ljósmyndarans Ragnars Axelssonar í sendiráði Íslands. Sýningin, sem heitir Jöklar, er í tilefni af formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu og verður hún opin almenningi um helgar í húsnæði sendiráðsins fram til 11. ágúst 2019.
Umræða