• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

5.000 króna ferðagjöf til þeirra sem fæddir eru 2002 eða fyrr

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. maí 2020
in Fréttir, Innlent, Lífsstíll, Neytendur, Viðskipti
A A
0

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur kynnt fyrir ríkisstjórn frumvarp til laga um ferðagjöf. Um er að ræða útfærslu á áður boðaðri aðgerð ríkisstjórnarinnar um 1,5 milljarða króna innspýtingu til að örva innlenda eftirspurn eftir ferðaþjónustu.
Í frumvarpinu kemur fram að ferðagjöf er stafræn 5.000 króna inneign sem stjórnvöld gefa út til einstaklinga sem fæddir eru árið 2002 eða fyrr og eru með íslenska kennitölu. Samkvæmt frumvarpinu má nýta ferðagjöfina til greiðslu hjá eftirtöldum fyrirtækjum sem hafa starfsstöð á Íslandi:

  • Fyrirtæki með gilt leyfi skv. III. kafla laga um ferðamálastofu, þ.e.a.s. ferðaskrifstofur og ferðasalar dagsferða
  • Fyrirtæki með gilt rekstrarleyfi skv. 7. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, þ.e.a.s. gististaðir í flokki II-IV og veitingastaðir í flokki II og III, og fyrirtæki með gilt starfsleyfi frá heilbrigðisnefnd til veitingastaða í flokki I
  • Ökutækjaleigur með gilt starfsleyfi skv. lögum um leigu skráningarskyldra ökutækja
  • Söfn og fyrirtæki sem bjóða sýningu gegn endurgjaldi þar sem áhersla er á íslenska menningu, sögu eða náttúru

Við afmörkun ferðagjafarinnar var haft að leiðarljósi að hún væri skýr, afdráttarlaus og eftir fremsta megni byggð hlutlægum þáttum fremur en huglægu mati.
Samkvæmt frumvarpinu verður heimilt að gefa eigin ferðagjöf öðrum einstaklingi en hver einstaklingur má aðeins greiða með að hámarki 15 ferðagjöfum. Þá er með hliðsjón af sjónarmiðum um ríkisaðstoð lagt til hámark á heildarfjárhæð ferðagjafa sem hvert fyrirtæki megi taka við; almennt er það 100 milljónir króna en 25 milljónir króna hafi fyrirtækið verið metið í rekstrarerfiðleikum 31. desember síðastliðinn.
Ákvæði er í frumvarpinu sem undanþiggur ferðagjöfina skattskyldu. Þar sem aðgerðin felur í sér ríkisaðstoð skv. 61. gr. EES-samningsins er gerður fyrirvari um samþykki Eftirlitsstofnunar EFTA.
Starfshópur hefur undanfarið unnið að tæknilegri útfærslu á ferðagjöfinni og er sú vinna mjög langt komin. Meðal annars hefur verið þróað smáforrit í samstarfi við frumkvöðlafyrirtækið Yay sem einfaldar greiðslu með ferðagjöfinni, þó að það verði ekki skilyrði. Þess er vænst að ferðagjöfin verði virkjuð snemma í júní.
Framkvæmd og útfærsla Ferðagjafar verður kynnt nánar á kynningarfundi sem streymt verður á vef Ferðamálastofu næstkomandi þriðjudag, 26. maí, klukkan 9:00. Sjá nánar hér.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    81 deilingar
    Share 32 Tweet 20
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?