• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fröken blönk

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Fröken blönk

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. maí 2023
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, skrifar

Hún er nokkuð þekkt, forsíðan sem For­bes-tíma­ritið birti und­ir lok árs 2007, með mynd af manni sem talaði í Nokia-farsíma og þeirri spurn­ingu velt upp hvort nokk­ur gæti velt „kon­ungi farsím­anna“ úr sessi.

Þessi forsíða er oft dreg­in upp enda vit­um við sem er að þetta sama ár kynnti Apple til leiks nýj­an síma, iP­ho­ne, sem inn­an fárra ára átti eft­ir að velta Nokia úr sessi. Á þeim rúma hálf­um öðrum ára­tug sem er liðinn síðan þá hafa Apple, Sam­sung og aðrir fram­leiðend­ur kynnt til leiks stór­brotna síma en Nokia setið eft­ir.
Það hafa verið skrifaðar marg­ar lærðar grein­ar um það hvernig Nokia varð und­ir og fyr­ir því eru fjöl­marg­ar ástæður. Ein af þeim sem vega þar þungt er viðhorf stjórn­enda fé­lags­ins til framþró­un­ar og vænt­inga neyt­enda. Með ein­föld­um hætti má segja að stjórn­end­ur Nokia töldu sig vita bet­ur en al­menn­ing­ur hvaða síma ætti að nota og hvernig.

Þessi stutta og ein­falda upp­rifj­un minn­ir að vissu leyti á stöðu Reykja­vík­ur­borg­ar, sem var einu sinni vel rek­in og öfl­ug borg, sem veitti góða þjón­ustu og eft­ir­sótt var að búa í. Frök­en Reykja­vík var áður drottn­ing en er núna blönk og hef­ur ekki burði til að þjón­usta íbúa sína með full­nægj­andi hætti.

Í grein sem ég skrifaði í fe­brú­ar 2021 sagði ég að ef Reykja­vík­ur­borg væri heim­il­is­bók­hald væri rekst­ur heim­il­is­ins í járn­um og yf­ir­drátt­ur­inn full­nýtt­ur þrátt fyr­ir að heim­il­is­menn hefðu fengið launa­hækk­an­ir síðustu ár. Grein­in vakti litla kátínu meðal meiri­hlut­ans sem svaraði með hefðbundn­um hætti; skæt­ingi og út­úr­snún­ing­um. Síðan þá hef­ur fjár­hags­staðan bara versnað og yf­ir­drátt­ur­inn er kom­inn í há­mark. Ólíkt heim­il­is­bók­hald­inu hleyp­ur þessi yf­ir­drátt­ur þó á millj­örðum.

Fjár­hags­vand­ræði Reykja­vík­ur urðu þó ekki til af sjálfu sér. Þau koma til þar sem vinstri meiri­hluti borg­ar­stjórn­ar hef­ur lagt meiri áherslu á sín eig­in hugðarefni frek­ar en þjón­ustu við íbúa. Það er búið að halda ótelj­andi íbúaþing og íbúa­kosn­ing­ar þar sem fólki er gef­inn kost­ur á að velja úr eðli­leg­um viðhalds- og upp­bygg­ing­ar­verk­efn­um, en á sama tíma hafa borg­ar­bú­ar enga val­kosti um dag­vist­un, skóla, sam­göngu­máta eða aðra þjón­ustu.

Þegar for­eldr­ar barna í mygluðum skóla láta í sér heyra yppa borg­ar­full­trú­ar öxl­um og þegar fólk lokast inni vegna snjó­komu er bent á að þjón­ustu­hand­bók um vetr­arþjón­ustu sé í end­ur­skoðun. Þá er ótal­inn leik­skóla­vand­inn, skort­ur á viðhaldi og um­hirðu, sís­tækk­andi yf­ir­stjórn og önn­ur atriði sem ým­ist skýr­ast af bágri fjár­hags­stöðu eða skorti á vilja borg­ar­yf­ir­valda til að þjón­usta íbúa.

Rétt eins og stjórn­end­ur Nokia þurftu á end­an­um að viður­kenna að þeir gátu ekki sagt fólki hvernig síma það átti að nota, þurfa stjórn­end­ur Reykja­vík­ur að viður­kenna að borg­in er til fyr­ir fólkið en ekki öf­ugt.

Umræða
Share38Tweet24
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?