Í gær, 22. maí, funduðu varnarmálaráðherrar Norðurhópsins svonefnda í Legionowo í nágrenni Varsjár. Pólland fer nú með formennsku í Norðurhópnum.
Rætt var um ógnir og áskoranir í Norðaustur-Evrópu í kjölfar árásarstríðs Rússlands gegn Úkraínu sem hefur umbreytt stöðu öryggismála. Full samstaða var um mikilvægi þess að halda áfram að styðja varnarbaráttu Úkraínu með hergögnum og öðrum stuðning. Á fundinum var einnig rætt um mikilvægi leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins sem haldinn verður í Vilníus í júlí og eflingu sameiginlegra varnar bandalagsins.
Norðurhópurinn er vettvangur reglubundins samráðs líkt þenkjandi ríkja um öryggis- og varnartengd málefni. Hópinn skipa tólf ríki: Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin, Bretland, Holland, Þýskaland og Pólland. Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, sótti fundinn fyrir hönd Íslands, í fjarveru utanríkisráðherra.