Jarðskjálfti varð í Langjökli rétt eftir klukkan tíu í kvöld. Samkvæmt mælingu Veðurstofunnar var skjálftinn 4,6 að stærð. Skjálftinn fannst mjög vel í uppsveitum Suðurlands, Borgarfirði og á Höfuðborgarsvæðinu.
Í tilkynningu segir: Kl. 22:12 varð skjálfti af stærð 4,6 í Langjökli, um 11 km norður af Hagajökli. Fjöldi tilkynninga hafa borist Veðurstofunni um að skjálftinn hafi fundist á öllu Vesturlandi, norður í Húnavatnshrepp, á Höfuðborgarsvæðinu og allt suður í Rangárþing eystra. Fjöldi eftirskjálfta hafa fylgt í kjölfarið. Síðast varð skjálfti yfir 4 að stærð í vestanverðum Langjökli 10. desember 2015.
Umræða