• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 31. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Í sjálfheldu í Hafnarfjalli ofan Siglufjarðar – 75 manns tóku beinan þátt í aðgerðinni

Stúlkunni var orðið mjög kalt, enda aðeins í stuttbuxum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. júlí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Kl. 15:22 barst aðstoðarbeiðni til lögreglu á Siglufirði vegna tveggja ferðamanna, sem væru í sjálfheldu í Hafnarfjalli ofan Siglufjarðar. Þarna hafði frönsk fjölskylda, hjón og tvö börn þeirra, verið á göngu í Hvanneyrarskál.

Leiðir skyldu þegar konan og annað barnið ákváðu að snúa við en maðurinn og 13 ára dóttir þeirra héldu áfram göngu upp fjallið. Þegar konuna fór að lengja eftir að þau skiluðu sér til baka hafði hún símasamband við manninn, sem sagði henni þá að þau væru búin að missa áttir og væru stopp ofan á fjallinu. Þá var komin þoka og rigningarúði á fjallinu, með tilheyrandi kólnandi hitastigi.

Stúlkunni var orðið mjög kalt, enda aðeins í stuttbuxum. Feðginin voru aðeins með einn síma og rafmagnið á honum kláraðist í þessu símtali og náðist því ekki samband við þau aftur.

Aðgerðarstjórn var virkjuð og var sent út allsherjarútkall á björgunarsveitir á þessu svæði, auk þess sem óskað var eftir þyrlu frá Landhelgisgæslunni og aðstoð sérsveitar lögreglu með dróna. Hópar björgunarsveitarfólks héldu þegar á fjallið og hafin var leit með dróna á þeirra vegum. Það var svo um kl. 17:00 sem björgunarsveitarmaður gat staðsett feðginin með dróna, suðaustan við Hvanneyrarhyrnu. Þau voru orðin köld en gátu gengið með björgunarsveitarmönnum niður fjallið eftir að hafa fengið aðhlynningu.

Alls tóku um 75 manns beinan þátt í aðgerðinni. Endirinn var farsæll en þetta mál er áminning um að þegar haldið er til fjalla þarf að gera ráð fyrir síbreytilegu íslensku veðurfari og gæta þess að nægur straumur sé á símum. Lögreglan þakkar frábærum björgunarsveitum fyrir góða samvinnu í enn einu verkefninu.

Umræða
Share6Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Málþóf stjórnarandstöðunnar enn á ný vegna sérhagsmuna

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Alþingismanni hótað

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Samráð: Veigamiklar breytingar á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu kynntar

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?