• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 7. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kallað eftir bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. júlí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Vegna mikillar fjölgunar greindra smita af COVID-19 á undanförnum dögum hefur verið ákveðið að endurvekja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Því er enn á ný óskað eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks sem er reiðubúið að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort sem er í fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa. Þau sem voru skráð í bakvarðasveitina og sjá sér enn fært að veita liðsinni eru vinsamlega beðin um að skrá sig þar á ný. 
  • Hægt er að skrá sig í bakvarðasveitina hér.

Fyrirkomulag varðandi bakvarðasveitina er eins og áður. Opinberar heilbrigðisstofnanir sem óska eftir að ráða liðsauka úr bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar geta nálgast lista með upplýsingum um þá sem hafa skráð sig til þátttöku hjá heilbrigðisráðuneytinu. Þær munu sjálfar hafa beint samband við bakverði og verður ráðningarsambandið milli viðkomandi stofnunar og þess/þeirra bakvarða sem ráða sig til starfa. Stofnanirnar sem um ræðir eru: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri.

Jafnframt er athygli vakin á bakvarðasveit velferðarþjónustunnar og tilkynningu félagsmálaráðuneytisins um skráningu í hana.

 

SPURT OG SVARAÐ UM BAKVARÐASVEITINA:

Eftir hverjum er óskað í bakvarðasveitina?

Heilbrigðisstarfsfólki úr hópi þeirra löggiltu heilbrigðisstétta sem taldar eru undir lið 6 í skráningarforminu, sjá hér.

Til hve langs tíma?

Leitað er að fólki sem getur skuldbundið sig tímabundið í allt að tvo mánuði, hvort sem um er að ræða fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu.

Hver eru launin?

Laun taka mið af kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags á viðkomandi stofnun.

Hver eru réttindi þeirra sem ráða sig til starfa?

Orlofsréttindi verða greidd jafnóðum. Veikindaréttur starfsfólks sem ráðið er í tímavinnu eða skemur en tvo mánuði er í samræmi við ákvæði kjarasamninga við ríkið.

Hvar skráir fólk sig í bakvarðasveitina?

Heilbrigðisráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform í þessu skyni, sjá hér.

Hvernig verður staðið að ráðningunni?

Þær heilbrigðisstofnanir sem óska eftir að ráða sér liðsauka úr bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar geta nálgast lista með upplýsingum um þá sem hafa skráð sig til þátttöku hjá heilbrigðisráðuneytinu. Stofnanirnar munu sjálfar hafa beint samband við bakverði og verður ráðningarsambandið milli viðkomandi stofnunar og þess/þeirra bakvarða sem ráða sig til starfa.

Umræða
Share7Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?