• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

BRAGÐMIKIL MENNING FYRIR ALLA ALDURSHÓPA

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. ágúst 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Loft Slag eru samstöðutónleikar gegn loftlagsvá sem haldnir verða í bílastæðahúsinu Traðarkoti við Hverfisgötu 20 í samstarfi við Útvarp 101. Hljómsveitirnar FM Belfast og Hermigervill munu stíga á svið uppúr 19.30 og munu gestir dansa til þess að vekja athygli á loftslagsmálum, tónleikunum lýkur kl. 21.00.
Lúðrasveitir halda áfram battli á Klambratúni og þar verður barist til síðasta tóns. Þá verður Blindrafélagið heiðursgestur Menningarnætur en félagið heldur upp á 80 ára afmæli um þessar mundir og býður upp á fjölbreytta fræðslu- og skemmtidagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Þrír stórtónleikar verða í miðborginni, Tónaflóð Rásar 2 á Arnarhóli, Garðpartý Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum og Hip hop tónleikar á Miðbakkanum. Þá eru yfir hundrað tónlistarviðburðir um alla borg og frítt er inná öll söfn í miðborginni sem öll sýna fjölbreytta dagskrá fram á kvöld.
Að venju lýkur afmælisveislunni með flugeldasýningu sem verður á sínum stað á Austurbakka kl. 23.00. Lögð er áhersla á að fjölskyldan sé saman á Menningarnótt og sé samferða heim. Hægt er að nálgast alla viðburði á Menningarnótt á vefnum menningarnott.is.
GÖTULOKANIR
Á Menningarnótt er miðborgin ein allsherjar göngugata og verður því lokuð fyrir bílaumferð frá kl. 7 að morgni til 2 eftir miðnætti. Það er gert til þess að tryggja öryggi gangandi og akandi vegfaranda á þessum fjölsóttasta hátíðardegi ársins. Gestir Menningarnætur eru hvattir til að ganga, hjóla eða nota almenningssamgöngur til að komast á hátíðasvæðið.
Þeir sem þurfa að koma á einkabíl er bent á að nota bílastæði við Borgartún og í Laugardalnum þar sem ókeypis strætóskutlur aka fólki til og frá hátíðarsvæðinu frá kl. 7.30-1.00. Eins og lög gera ráð fyrir verður sektað fyrir ólöglegar bílastöður og þeir bílar sem hindra aðgengi lögreglu, sjúkrabíla og slökkviliðs verða dregnir í burtu svo unnt sé að tryggja aðgengi þessara öryggisaðila ef óhapp ber að. Hægt er að nálgast kort yfir götulokanir á vefsíðu Menningarnætur menningarnott.is eða fá upplýsingar í símaveri Reykjavíkurborgar frá kl. 8-23 á Menningarnótt, s.411-1111.
FRÍTT Í STRÆTÓ Á MENNINGARNÓTT
Ókeypis verður í Strætó sem keyrir samkvæmt hefðbundinni leiðartöflu fram til kl. 22.30. Þá tekur við sérstök leiðartafla sem miðar að því að koma fólki hratt og örugglega heim úr miðborginni. Strætó byrjar að ganga frá Sæbraut fyrir neðan Höfða strax að athöfn lokinni við Arnarhól og gengur til klukkan 01.00. Hægt er að finna nánari upplýsingar um leiðarkerfi þeirra vagna Strætó sem aka í miðborgina á vef Strætó. Á Menningarnótt er boðið uppá ókeypis strætóskutlur sem aka reglulega til og frá bílastæðum við Laugardalshöll og Borgartún og að Hallgrímskirkju með viðkomu á Hlemmi. Þessi þjónusta hefur mælst vel fyrir síðustu ár en einkunnarorð hennar eru: Leggðu fjær til að komast nær.
AÐGENGI OG ÞJÓNUSTA
Sérstök bílastæði fyrir fatlaða og hreyfihamlaða eru á Skúlagötu, Túngötu og við Tækniskólann. Einnig verður hægt að taka leigubíl inn á Skólavörðuholt, Skúlagötu, Túngötu og BSÍ. Sérstök salerni fyrir fatlaða eru á nokkrum stöðum á hátíðarsvæðinu. Nánari upplýsingar eru á vef menningarnott.is
Reykjavíkurborg kynnir hátíðina nánar á vef sínum.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?