• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Vinnumálastofnun dregur úr dvöl flóttafólks í Reykjanesbæ

Mynd: Reykjanesbær

Innbrotum á heimili fjölgar á milli mánaða

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. ágúst 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Alls barst 891 tilkynning um hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í júlí. Um helmingur brotanna voru með skráðan vettvang á svæði lögreglustöðvar 1, sem nær yfir Miðborg, Vesturbæ, Seltjarnarnes, Háaleiti, Hlíðar og Laugardal. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júlí 2023.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði töluvert á milli mánaða sem og tilkynningum um innbrot. Flestar tilkynningar um innbrot í júlí voru innbrot á heimili.

Alls bárust 115 tilkynningar um ofbeldisbrot í júlí. Tilkynningar um heimilisofbeldi fækkaði á milli mánaða og fóru úr 573 tilkynningum í júní í 55 tilkynningar í júlí. Það sem af er ári hafa borist um tíu prósent færri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Í júní voru skráð þrjú tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi og þrjú tilvik þar sem lögreglumanni var hótað ofbeldi og eru það færri tilvik en að meðaltali síðustu 12 mánuði á undan.

Alls bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 23 tilkynningar um kynferðisbrot í júlí, um 21 þeirra tilkynninga voru vegna brota sem áttu sér stað í júlí. Tilkynningar um kynferðisbrot voru innan útreiknaðra marka fyrir síðustu 6 og síðustu 12 mánuði á undan.

Alls bárust 20 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í júlí og fjölgar þessum leitarbeiðnum miðað við útreiknuð mörk fyrir síðustu 12 mánuði á undan.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru skráð fjögur stórfelld fíkniefnabrot í júlí. Heilt yfir hafa þó verið skráð um 27 prósent færri fíkniefnabrot á höfuðborgarsvæðinu en voru skráð að meðaltali á sama tímabili síðustu þrjú ár á undan. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í júlí var skráð 872 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum) á höfuðborgarsvæðinu. Það sem af er ári hafa verið skráð um fimm prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en hafa verið skráð að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?