Hugleiðingar veðurfræðings
Suðvestanátt í dag, strekkingur norðvestanlands en annars hægari vindur. Víða léttskýjað, en skýjað með köflum vestanlands. Hiti 6 til 13 stig. Vaxandi suðvestanátt á morgun, hvassviðri eða stormur seint um daginn. Rigning á vestanverðu landinu, en úrkomulítið og hlýtt austanlands. Snýst í norðan og norðvestan hvassviðri eða storm á sunnudag og kólnar ört í veðri. Slydda eða snjókoma á Norður- og Norðausturlandi, en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Síðdegis fer svo að lægja vestanlands.
Gul viðvörun vegna veðurs: Höfuðborgarsvæðið, Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Strandir og norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirðir, Suðausturland og Miðhálendi
Veðuryfirlit
500 km SV af Svalbarða er 986 mb lægð sem fer NV, en um 1300 km SA af Hvarfi er 1030 mb hæð sem fer hægt A. Yfir Labrador er 990 mb lægð á NA-leið.
Samantekt gerð: 23.09.2022 07:32.
Veðurhorfur á landinu
Suðvestan 5-15 m/s, hvassast norðvestantil. Víða léttskýjað, en skýjað með köflum vestanlands. Hiti 6 til 13 stig. Gengur í suðvestan 10-18 m/s á morgun og 15-23 annað kvöld. Rigning, en lengst af þurrt á Austurlandi. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast fyrir austan.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Fremur hæg suðvestanátt í dag og skýjað með köflum. Hiti 6 til 11 stig. Gengur í suðvestan 8-13 m/s á morgun, en 13-18 annað kvöld. Súld eða rigning, hiti 10 til 13 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Snýst í norðan og norðvestan hvassviðri eða storm, en lægir vestantil eftir hádegi og bætir í vind fyrir austan. Slydda eða snjókoma á Norður- og Norðausturlandi, en þurrt annars staðar. Hiti 1 til 10 stig. Dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið.
Á mánudag:
Norðvestan hvassviðri við austurströndina, en mun hægari annars staðar. Víða bjart og hiti 2 til 9 stig yfir daginn, mildast Sunnan- og Vestanlands.
Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Austlæg eða breytileg átt og úrkomulítið. Hiti 3 til 10 stig að deginum.