Velferðarvaktin stendur fyrir morgunverðarfundi þann 9. október nk. um stöðu og aðstæður foreldra sem ekki deila lögheimili með barni. Kynntar verða helstu niðurstöður nýlegrar rannsóknar á stöðu og aðstæðum foreldra sem ekki deila lögheimili með barni.
Velferðarvaktin og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið stóðu að rannsókninni en Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands sá um framkvæmd hennar. Þá verða flutt erindi og að lokum fara fram pallborðsumræður, meðal annars með þátttöku félags- og vinnumarkaðsráðherra og dómsmálaráðherra.
Málþingið fer fram á Hótel Reykjavík Natura kl. 9:00-10:30 og opnar húsið kl. 8:30.
Óskað er eftir að þátttakendur skrái sig á málþingið:
Dagskrá
Rannsókn á stöðu og aðstæðum foreldra sem deila ekki lögheimili með barni
Ásdís Aðalbjörg Arnalds, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, kynnir helstu niðurstöður
Hefur regluverk þróast samhliða breyttu fjölskyldumynstri?
• Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild HÍ, fjallar um megineinkenni íslenska kerfisins í sögulegu og alþjóðlegu samhengi
• Brjánn Jónsson, formaður Foreldrajafnréttis, kynnir sjónarmið félagsins
Pallborðsumræður:
• Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
• Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra
• Brjánn Jónsson, formaður Foreldrajafnréttis
• Gyða Hjartardóttir, umsjónar og ábyrgðaraðili SES (Samvinna eftir skilnað) á Íslandi
• Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands
Fundarstjóri Siv Friðleifsdóttir, formaður Velferðarvaktar.
Húsið opnar kl. 8:30.