• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 19. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

90% stuðningsfólks Miðflokksins hafa miklar áhyggjur af þriðja orkupakkanum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. október 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

,,90% stuðningsfólks Miðflokksins hafa miklar áhyggjur af áhrifum orkupakkans á þjóðarhagsmuni en alls kváðust 72% hafa mjög miklar áhyggjur.“ Þá er áberandi að eldra og reyndara fólk hefur mestar áhyggjur áhrifum orkupakkans skv. könnun MMR

Helmingur landsmanna segist hafa litlar eða engar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakka ESB á hagsmuni þjóðarinnar en um þriðjungur hefur miklar áhyggjur. Þetta kemur fram í könnun MMR sem framkvæmd var dagana 9. – 16. september 2019. Alls kváðust 22% hafa mjög miklar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakkans, 12% kváðust hafa frekar miklar áhyggjur, 16% bæði/og, 17% frekar litlar áhyggjur og 33% mjög litlar eða engar áhyggjur.
MMR hafði áður mælt hversu fylgjandi eða andvígir landsmenn væru gagnvart innleiðingu þriðja orkupakkans á Íslandi en í könnun sem framkvæmd var í júní 2019 reyndust 46% svarenda andvígir innleiðingunni og 34% hlynntir henni. Má því segja að um ákveðinn viðsnúning hafi orðið í afstöðu almennings til málsins.
1909 OrkupakkiSpurt var: „Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af áhrifum þriðja orkupakka ESB á hagsmuni þjóðarinnar?“
Svarmöguleikar voru: „Mjög miklar áhyggjur“, „Frekar miklar áhyggjur“, „Bæði/og“, „Frekar litlar áhyggjur“, „Mjög litlar eða engar áhyggjur“ og „Veit ekki/vil ekki svara“.
Samtals tóku 81,9% afstöðu til spurningarinnar.

Munur eftir lýðfræðihópum
Karlar (55%) reyndust líklegri heldur en konur (43%) til að segjast hafa litlar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakkans á hagsmuni þjóðarinnar en 41% karla sögðust hafa mjög litlar eða engar áhyggjur, samanborið við 23% kvenna. Þá kváðust 27% kvenna hafa mjög miklar áhyggjur af áhrifum orkupakkans en 19% karla.
Svarendur í elsta aldurshópnum (67 ára og eldri) voru líklegri en svarendur annarra aldurshópa til að segjast hafa miklar áhyggjur af áhrifum innleiðingar orkupakkans (41%) en 34% þeirra sögðust hafa mjög miklar áhyggjur. Svarendur yngsta aldurshópsins (18-29 ára) reyndust hins vegar líklegastir allra aldurshópa til að segjast hafa litlar áhyggjur (55%) en 41% þeirra kváðust hafa mjög litlar eða engar áhyggjur.
Þá reyndust svarendur búsettir á höfuðborgarsvæðinu líklegri til að segjast hafa litlar áhyggjur af áhrifum pakkans á hagsmuni þjóðarinnar (55%) heldur en íbúar landsbyggðarinnar (40%) en 37% höfuðborgarbúa kváðust hafa mjög litlar eða engar áhyggjur. Þá kváðust 28% landsbyggðarbúa hafa mjög miklar áhyggjur, samanborið við 19% þeirra af höfuðborgarsvæðinu.
1909 Orkupakki x1
 
Ef litið er til stjórnmálaskoðana má sjá að skiptar skoðanir voru á meðal stuðningsfólks ríkisstjórnarflokkanna. Alls kváðust 68% stuðningsfólks Vinstri-grænna hafa litlar áhyggjur af áhrifum innleiðingar þriðja orkupakkans, samanborið við 59% stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins og 51% stuðningsfólks Framsóknar. Þá reyndist rúmur helmingur stuðningsfólks Vinstri-grænna (51%) hafa mjög litlar eða engar áhyggjur. Áhyggjurnar reyndust meiri hjá stuðningsfólki Framsóknar heldur en hjá stuðningsfólki hinna ríkisstjórnarflokkanna en 36% þeirra kváðust hafa miklar áhyggjur, samanborið við 17% stuðningsfólks Vinstri-grænna og 20% stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins.
Af stuðningsfólki stjórnarandstöðuflokkanna reyndist stuðningsfólk Samfylkingar (82%) og Viðreisnar (83%) líklegast til að segjast hafa litlar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakkans en stuðningsfólk Miðflokks ólíklegast (4%). Þá kváðust 90% stuðningsfólks Miðflokksins hafa miklar áhyggjur af áhrifum orkupakkans á þjóðarhagsmuni en alls kváðust 72% hafa mjög miklar áhyggjur.
 
1909 Orkupakki x2
 
Ef stjórnmálaflokkunum er skipt upp í blokkir eftir afstöðu til þriðja orkupakkans og setu í ríkisstjórn má sjá að stór hluti stuðningsfólks Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar, eða 77%, reyndist hafa litlar áhyggjur af áhrifum orkupakkans á þjóðarhagsmuni um leið og 60% stuðningsfólks ríkisstjórnarflokkanna sögðust hafa litlar áhyggjur. Þvert á móti, og eins og áður greinir, reyndust 90% stuðningsfólks Miðflokksins hins vegar hafa miklar áhyggjur af áhrifum orkupakkans.
Þá voru þeir sem kváðust fylgjandi inngöngu Íslands í ESB (80%) líklegri til að segjast hafa litlar áhyggjur en þau sem kváðust andvíg inngöngu í ESB (29%) en um tveir af hverjum þremur Evrópusinnum (67%) kváðust hafa mjög litlar eða engar áhyggjur.
 
1909 Orkupakki x3
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    125 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Svartaþoka yfir miðborginni – Þykkur þokubakki við ströndina

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    138 deilingar
    Share 55 Tweet 35
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?