• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 22. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ráðherra skipar samráðsnefnd um fiskeldi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. október 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað samráðsnefnd um fiskeldi. Nefndin er skipuð á grundvelli laga sem Alþingi samþykkti nýverið en henni er ætlað að vera stjórnvöldum til ráðgjafar vegna málefna fiskeldis.
Nefndinni ber að taka til umfjöllunar mál sem snerta fiskeldi, meðal annars að leggja mat á forsendur og úrvinnslu þeirra gagna sem áhættumat erfðablöndunnar byggist á. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá umhverfis- og auðlindarráðuneytinu, Landsambandi veiðifélaga, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Hafrannsóknarstofnun og Sambandi íslenskra sveitafélaga. Þá skipar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra formann nefndarinnar.
Nefndin er skipuð til fjögurra ára og er þannig skipuð:
Aðalmenn:
Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri, án tilnefningar, formaður.
Bjarni Jónsson, tilnefndur af umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
Guðrún Sigurjónsdóttir, tilnefnd af Landssambandi veiðifélaga.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Ragnar Jóhannsson, tilnefndur af Hafrannsóknastofnun.
Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Varamenn:
Unnur Brá Konráðsdóttir, án tilnefningar
Álfheiður Ingadóttir, tilnefnd af umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
Elías Blöndal Guðjónsson, tilnefndur af Landssambandi veiðifélaga.
Kristján Þórarinsson, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Sólveig Rósa Ólafsdóttir, tilnefnd af Hafrannsóknastofnun.
Karl Óttar Pétursson,tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
„Að baki þeirri ákvörðun að setja á fót samráðsnefnd um fiskeldi hvílir sú meginhugsun að stuðla að nauðsynlegu samráði um uppbyggingu greinarinnar. Að vísindin, hagsmunaaðilar og stjórnvöld eigi sameiginlegan vettvang til skoðanaskipta um þá mikilvægu uppbyggingu sem nú á sér stað og fyrirhuguð er. Með þessari nefnd erum við jafnframt að fylgja þeirri ráðgjöf okkar helstu nágrannalanda, sem eru komin mun lengra en við Íslendingar í að byggja upp öflugt fiskeldi, að það sé lykilatriði að stuðla að náinni samvinnu þeirra lykilþátta sem koma að uppbyggingu greinarinnar, þ.e. stjórnvalda, fiskeldisfyrirtækja, náttúrunnar og vísinda. Ég tel augljóst að við getum látið þessa lykilþætti vinna betur saman og ég bind vonir við að samráðsnefndin sé mikilvægt skref í þá veru.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    149 deilingar
    Share 60 Tweet 37
  • Líkamsárás í Úlfarsárdal

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fjársvik: Selur mörgum sama gáminn sem ekki er til

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Börn og fullorðnir í hnífa árásum

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?