Fluttur með sjúkrabifreið á Bráðadeild
Tilkynnt var um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur klukkan hálf þrjú í nótt. Tveir ungir menn réðust á ölvaðan eldri mann. Að sögn vitna börðu þeir manninn og spörkuðu í höfuð hans þar sem hann lá í götunni efti líkamsárásina.
Annar árásaraðilinn var handtekinn og vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Árásarþoli var fluttur með sjúkrabifreið á Bráðadeild til aðhlynningar. Ekki er vitað um áverka.
Umræða