• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 12. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hægur vindur og bjart veður

Hægur vindur og bjart veður

Ekki að sjá annað en að vikan haldi áfram að vera róleg í veðrinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. október 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Nú þegar þetta er skrifað er lítil og veikluleg lægð stödd við austurströndina. Af hennar völdum er útlit fyrir norðan 3-10 m/s um landið norðaustan- og austanvert og með fylgir rigning eða slydda af og til og snjókoma til fjalla. Í öðrum landshlutum verður hæg breytileg átt í dag og bjartviðri.

Á morgun er síðan útlit fyrir hægan vind og bjart veður um allt land.
Hiti í dag og á morgun á bilinu 1 til 7 stig yfir daginn, mildast við suðvesturströndina. Kaldara í kvöld og nótt, hiti þá kringum frostmark. Það er ráðlegt að vera á varðbergi gagnvart hálkublettum sem geta myndast.

Þegar horft er á veðurkort fyrir dagana um og eftir miðja vikuna er ekki að sjá annað en að vikan haldi áfram að vera róleg í veðrinu. Áttin verður austlæg og stundum lítilsháttar úrkoma á austanverðu landinu, en yfirleitt þurrt annars staðar. Langt suður í hafi stefna lægðir til vesturs í áttina að meginlandi Evrópu, þar er útlit fyrir vætu- og vindasama viku.

Veðurhorfur á landinu
Norðan 3-10 m/s norðaustan- og austanlands og rigning eða slydda með köflum. Hæg breytileg átt í öðrum landshlutum og bjartviðri.

Hæg breytileg átt á morgun og þurrt og bjart veður víða um land, en austan 5-10 syðst annað kvöld.

Hiti 1 til 7 stig yfir daginn, mildast við suðvesturströndina. Hiti kringum frostmarki í kvöld og nótt.
Spá gerð: 23.10.2023 09:05. Gildir til: 25.10.2023 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag og fimmtudag:
Austan 3-8, en 8-13 við suðurströndina. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt, en dálítil rigning á köflum á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 2 til 8 stig að deginum, mildast suðvestanlands.

Á föstudag, laugardag (fyrsti vetrardagur) og sunnudag:
Austan- og norðaustanátt og bjartviðri, en skýjað og úrkomulítið á austanverðu landinu. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn.
Spá gerð: 23.10.2023 08:01. Gildir til: 30.10.2023 12:00.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Strandveiðimenn mótmæla stjórnarandstöðunni við Alþingi, í dag og á morgun

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    463 deilingar
    Share 185 Tweet 116
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Málþóf minnihlutans stöðvað

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?