• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bílatryggingar eru 50 til 100% dýrari hér en á hinum Norðurlöndunum

Engar eðlilegar skýringar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. nóvember 2020
in Fréttir, Innlent, Neytendur, Viðskipti
A A
0

,,Engin raunveruleg samkeppni á milli félaganna og hefur aldrei verið“

Bílatryggingar eru 50-100% dýrari hér á landi en á hinum Norðurlöndunum samkvæmt samanburði sem FÍB gerði í október. Ítarlega er fjallað um þessa iðgjaldakönnun í nýútkomnu blaði FÍB. Engar eðlilegar skýringar eru á því hvers vegna munurinn er svona mikill íslenskum bíleigendum í óhag.

Í Danmörku eru bílar til dæmis dýrari en hér og laun svipuð. Samt eru íslensku bílatryggingarnar 57-97% dýrari en þær dönsku. Danskt tryggingafélag innheimtir rúmlega 97 þúsund króna iðgjald á móti 153 til 192 þúsund króna iðgjaldi íslensku félaganna. Fíb hefur rannsakað málið í þaula og hefur komist að niðurstöðu:

Einu „eðlilegu“ skýringarnar á þessum mikla verðmun liggja í því að íslensku tryggingafélögin okra á bíleigendum vegna þess að þau komast upp með það. Engin raunveruleg samkeppni ríkir á milli félaganna og hefur aldrei gert. Fjármálaeftirlit Seðlabankans beinlínis hvetur félögin til að hafa sem hæst iðgjöld. Þessum ofteknu iðgjöldum er safnað í tugmilljarða króna sjóði sem tryggingafélögin ávaxta í þágu eigenda sinna.

Í könnun FÍB voru tekin hliðstæð dæmi um bíltegundir og fjölskylduaðstæður, til að fá sem réttastan samanburð. Óskað var eftir iðgjaldatilboðum í VW Golf annars vegar og Toyota RAV hins vegar. Hér má sjá töflu yfir iðgjöldin sem tryggingafélög á Norðurlöndunum buðu í Golfinn.

Iðgjöld á Norðurlöndunum

Íslenskar krónur

VW Golf eTSI 150

Ábyrgð og kaskó

TM 153.156
Vörður 177.352
VÍS 180.825
Sjóvá 192.668
Svíþjóð/Gautaborg 85.300
Danmörk/Kaupmannahöfn 97.500
Noregur/Osló 105.500
Finnland/Helsinki 112.500

Næstu daga verður nánar fjallað hér á vefsíðu FÍB um iðgjaldasamanburðinn.

Nánar er hægt að lesa um málið í FÍB Blaðinu

https://gamli.frettatiminn.is/11/05/2018/haar-ardgreidslur-til-hluthafa-tryggingafelaga-sama-tima-og-idgjold-almenning-haekka/

 

Umræða
Share181Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    181 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?