• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lögreglan varar við hvassviðri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgaði úr 45 í 72 í september

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. nóvember 2023
in Fréttir, Innlent, Uncategorized
A A
0
Alls bárust 790 tilkynningar um hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í október. Um helmingur brotanna voru með skráðan vettvang á svæði lögreglustöðvar 1, sem nær yfir Miðborg, Vesturbæ, Seltjarnarnes, Háaleiti, Hlíðar og Laugardal. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir október 2023.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum um innbrot. Flestar tilkynningar um innbrot í október voru innbrot í fyrirtæki og/eða stofnanir.

Alls bárust 133 tilkynningar um ofbeldisbrot í október. Tilkynningar um heimilisofbeldi fjölgaði á milli mánaða og fóru úr 45 tilkynningum í september í 72 tilkynningar í október. Það sem af er ári hafa borist um átta prósent færri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Í október voru skráð átta tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi.

Alls bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 43 tilkynningar um kynferðisbrot í október, um 19 þeirra tilkynninga voru vegna brota sem áttu sér stað í október.

Alls bárust 37 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í október. Ekki hafa borist jafn margar beiðnir um leit að börnum og ungmennum síðan í mars 2018. Það sem af er ári hafa borist um 17 prósent fleiri leitarbeiðnir en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru skráð þrjú stórfelld fíkniefnabrot í október. Heilt yfir hafa þó verið skráð um 27 prósent færri fíkniefnabrot á höfuðborgarsvæðinu en voru skráð að meðaltali á sama tímabili síðustu þrjú ár á undan. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði töluvert á milli mánaða á meðan tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fækkaði.

Í október var skráð 734 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum) á höfuðborgarsvæðinu. Það sem af er ári hafa verið skráð um sjö prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en hafa verið skráð að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.

Skýrsluna í heild er hægt að nálgast hér: https://issuu.com/logreglan/docs/lykiltolur_2023_okt_ber

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?