• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Breytingar á tekjuskatti einstaklinga um áramót

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. desember 2020
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

 

Um áramótin mun síðari áfangi breytinga á tekjuskatti einstaklinga taka gildi. Þessi seinni áfangi felur í sér lækkun á grunnþrepi tekjuskatts um 3,60 prósentustig og hækkun á miðþrepi tekjuskatts um 0,75 prósentustig. Nýju skattprósenturnar verða því 17% í grunnþrepi og 23,5% í miðþrepi. Við prósenturnar bætist síðan útsvarsprósenta sveitarfélaga.

Samkvæmt lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt skal fjárhæð persónuafsláttar taka breytingu út frá margfeldi breytingar vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði og hlutfalls nýrrar grunnprósentu tekjuskatts einstaklinga af grunnprósentu ársins áður, að útsvarsprósentu meðtalinni. Þá skulu þrepamörk tekjuskatts vera uppreiknuð í hlutfalli við hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði.

Á grundvelli þess eru skatthlutföll og þrepamörk árið 2021 eftirfarandi.

2021
Prósenta í 1. þrepi: 31,45% (þar af 14,45% útsvar)
Prósenta í 2. þrepi: 37,95% (þar af 14,45% útsvar)
Prósenta í 3. þrepi: 46,25% (þar af 14,45% útsvar)
  Á ári Á mánuði
Persónuafsláttur: 609.509 50.792
Þrepamörk milli 1. og 2. þreps: 4.188.211 349.018
Þrepamörk milli 2. og 3. þreps: 11.758.159 979.847

Meðalútsvar á árinu 2021 verður samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarfélaga 14,45% sem er hækkun um 0,01 prósentustig frá fyrra ári. Við staðgreiðslu ber launagreiðendum að miða við meðalútsvarshlutfallið. Af 69 sveitarfélögum munu 53 leggja á hámarksútsvar. Fjögur sveitarfélög munu leggja á lágmarksútsvar.

Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða 168.230 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldagreiðslu launþega í lífeyrissjóð. Skattleysismörkin voru 162.398 kr. á mánuði árið 2020 og því er hækkun skattleysismarka 3,6% sem er í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs.

Í næstu töflu má sjá þróun helstu breyta tekjuskattskerfisins yfir þrjú ár.

Skatthlutföll, persónuafsláttur, þrepamörk og skattleysismörk í staðgreiðslu frá 2019
Skatthlutföll tekjuskatts til ríkis og sveitarfélaga (%) 2019 2020 2021
Tekjuskattur til ríkis      
1. þrep 22,50% 20,60% 17,00%
2. þrep 31,80% 22,75% 23,50%
3. þrep   31,80% 31,80%
Meðalskatthlutfall útsvars (%) 14,44% 14,44% 14,45%
Skatthlutfall samtals í staðgreiðslu (%)      
1. þrep 36,94% 35,04% 31,45%
2. þrep 46,24% 37,19% 37,95%
3. þrep . 46,24% 46,25%
Persónuafsláttur (kr./mánuði)      
Persónuafsláttur 56.447 54.628 50.792
Þrepamörk á mánuði (kr./mán)      
Neðri mörk 927.087 336.916 349.018
Efri mörk . 945.873 979.847
Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars í staðgreiðslu (kr./mán)      
Án tillits til frádráttar 4% iðgjalds 152.807 155.902 161.501
Með tilliti til frádráttar 4% iðgjalds 159.174 162.398 168.230
Skattleysismörk tekjuskatts til ríkissjóðs (kr./mán)      
Án tillits til frádráttar 4% iðgjalds 250.876 265.184 298.776
Með tilliti til frádráttar 4% iðgjalds 261.329 276.233 311.225

Tryggingagjald

Í ársbyrjun 2021 mun skatthlutfall almenns tryggingagjalds lækka um 0,25 prósentustig, úr 4,9% í 4,65%. Er sú aðgerð tímabundin í eitt ár og hluti af aðgerðarpakka stjórnvalda vegna efnahagsáhrifa kórónuveirunnar.

Tryggingagjald í heild lækkar úr 6,35% í 6,10%, sbr. meðfylgjandi töflu.

Ár 2020 2021
Almennt tryggingagjald 4,90% 4,65%
Atvinnutryggingagjald 1,35% 1,35%
Gjald í Ábyrgðarsjóð launa vegna gjaldþrota 0,05% 0,05%
Markaðsgjald 0,05% 0,05%
Tryggingagjald, samtals 6,35% 6,10%
Umræða
Share15Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?