Helstu atriði úr dagbók LRH frá 17-05. Þegar þetta er ritað eru fimm vistaðir í fangageymslu lögreglu fyrir margvíslega glæpi. Alls eru 83 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili.
Lögreglustöð 1
Eldur í bifreið. Slökkt áður en viðbragðsaðila bar að garði og bifreiðin dregin af vettvangi.
Maður kærður fyrir að reykspóla sem og fyrir að hafa skráningarmerki bifreiðar sinnar ekki greinileg.
Fimm ára barn ekki í viðeigandi öryggisbúnaði um borð í bifreið. Ökumaðurinn sektaður vegna þessa.
Maður handtekinn fyrir að aka bifreið undir áhrifum áfengis. Hefðbundið ferli.
Lögregla hafði afskipti af unglingapartýi. Eitt ungmennið reyndist hafa rafmagnsvopn í sínum fórum. Fluttur á lögreglustöð til skýrslutöku í samvinnu við forráðamenn og barnavernd.
Útlendingur handtekinn grunaður um ólöglega dvöl í landinu en sá neitaði að framvísa skilríkjum og sýna fram á lögmæti dvalar. Vistaður í fangaklefa.
Maður handtekinn grunaður um ölvunarakstur. Kom á daginn að hann hafði verið sviptur ökurétti fyrir slíkt hið sama. Hefðbundið ferli.
Annar maður handtekinn vegna ölvunaraksturs en sá hafði einnig ekið á 116 á 80 götu. Hefbundið ferli.
Þriðji maðurinn handtekinn fyrir það sama og hlaut sömu afgreiðslu.
Lögreglustöð 2
Maður kærður fyrir að aka bifreið í andstöðu við nánar tiltekna grein í umferðarlögunum sem kveður á um skyldu ökumanns til að hafa ökuréttindi við slíka iðju. Á bifreiðina vantaði tvö lögboðin ökuljós sem bættist við sektina.
Þjófnaður í matvöruverslun.
Lögreglustöð 3
Umferðarslys hvar tvennt var flutt til aðhlynningar á slysadeild og tvær bifreiðar óökufærar. Önnur þeirra reyndist vera ótryggð.
Maður kærður fyrir að aka bifreið próflaus.
Lögreglustöð 4
Kona kærð fyrir að aka bifreið svipt ökurétti.
Innbrot í bifreið hvar ýmsum verkfærum var stolið. Málið er í rannsókn.
Maður handtekinn grunaður um brot á lögreglusamþykkt en sá var með ofbeldistilburði á almannafæri.. Vistaður í fangaklefa enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks.
Maður handtekinn grunaður um fíkniefnaakstur. Hefðbundið ferli.

