• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 6. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Afhentu styrk til Neytendasamtakanna á 70 ára afmælinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. mars 2023
in Fréttir, Innlent, Neytendur, Viðskipti
A A
0

Neytendasamtökin fagna 70 ára afmæli í dag 23. mars.  Í tilefni af þessum tímamótum fengu samtökin þriggja milljón króna fjárstyrk frá ríkisstjórninni. Fengu þau einnig styrk frá VR

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, afhentu samtökunum styrki í dag. 
Markmið styrksins er að styðja við mikilvæg verkefni sem fram undan eru hjá Neytendasamtökunum. Styrkurinn verður meðal annars notaður til þess að vinna ítarlega úttekt á tryggingamarkaðinum á Íslandi.
Breki Karlsson formaður samtakanna sagði að markmiðið væri að kanna hvers vegna tryggingariðgjöld hér á landi eru mun hærri en í nágrannalöndum. 
„Neytendasamtökin hafa staðið þessa vakt og passað upp á neytendur, sem eru reyndar þjóðin,“ sagði ráðherra meðal annars í heimsókn sinni til samtakanna fyrr í dag. 
„Núna þegar við erum stödd á miklum verðbólgutímum, þá hefur hlutverk ykkar aldrei verið meira.“ 
Neytendasamtökin voru formlega stofnuð á fjölmennum fundi þann 23. mars 1953 og  á fundinum voru lög samtakanna samþykkt og 25 manna stjórn skipuð. Neytendasamtökin eru íslensk frjáls félagasamtök neytenda en hlutverk þeirra er að vernda hagsmuni íslenskra neytenda með því að framkvæma verð- og þjónustukannanir og birta niðurstöður sínar í fjölmiðlum.
Síðastliðið haust voru framlög til Neytendasamtakanna einnig hækkuð í uppfærðum þjónustusamningi menningar- og viðskiptaráðuneytisins við samtökin. Er hækkunin í samræmi við áherslu í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um styrkingu samtaka neytenda.
,,Neytendasamtökin hafa staðið vaktina í 70 ár en starf samtakanna skipta neytendur svo sannarlega máli. Það er sérstaklega mikilvægt að huga að vel að neytendamálum á tímum hárrar verðbólgu. Í slíku ástandi vex þörfin á öflugu neytendaeftirliti, en þurfa allir að vera á tánum gagnvart verðlagningu á vörum og þjónustu. Slíkt skiptir máli fyrir lífkjörin í okkar góða landi. Ég óska Neytendasamtökunum til hamingju með þennan merkisáfanga og hlakka til áframhaldandi samstarfs við þau.‘‘

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    119 deilingar
    Share 48 Tweet 30
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    55 deilingar
    Share 38 Tweet 7
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?