![](https://gamli.frettatiminn.is/wp-content/uploads/2022/09/Logr22.jpg)
Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft til rannsóknar ætlað stórfellt brot í nánu sambandi og ætlaða tilraun til manndráps frá 25. febrúar sl. Karlmaður á fertugsaldri hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp.
Rannsóknin málsins, sem er nokkuð umfangsmikil, hefur verið í algjörum forgangi hjá embættinu.
Ekki verða veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu að sögn lögreglunnar.
Umræða