Alls nýttu 2.435 börn sér hvatagreiðslur Reykjanesbæjar á síðasta ári sem er 60% af heildarfjölda barna fjögurra til átján ára í bæjarfélaginu. Nýtingin hefur aukist um 9,2% frá 2019 en er þó að sögn Hafþórs Birgissonar, íþrótta- og tómstundafulltrúa í viðtali við Víkurfréttir, mun lægri en í öðrum sveitarfélögum.
„Því miður, segi ég nú bara. Nýtingin ætti að vera miklu hærri,“ sagði Hafþór við VF.
Bæjaryfirvöld ákváðu fyrir skemmstu að bæta við hvatagreiðslum fyrir eldri borgara frá 67 ára aldri sem hafa svo sannarlega slegið í gegn að sögn Hafþórs. „Það hafa 192 eldri borgarar nýtt sér hvatagreiðslur en þær hófust um áramótin. En hvað eru eldri borgarar að nýta hvatagreiðslur í?
„Það er allur gangur á því, við getum nefnt árskort í sund, árgjald í golfklúbb, sundleikfimi, líkamsræktarstöðvar og fleira mætti nefna. Ég vil bara hvetja eldri borgara að nýta sér þessa nýjung en líka hvetja foreldra barna að gera það. Enn eru fjögur börn af tíu ekki að nýta sér hvatagreiðslur. Það er hægt að nýta hvatagreiðslur á stafrænan hátt í tölvu eða síma en líka bara koma í þjónustuverið í ráðhúsi Reykjanesbæ,“ sagði Hafþór í viðtali við VF.