Manni var kastað fram af svölum á Norðurlandi eystra um helgina. Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum.
Í færslunni segir lögreglan að ofbeldishegðun í samfélaginu hafi aukist töluvert undanfarin misseri og kveðst hún hafa miklar áhyggjur af því. Í framhaldinu segir hún frá nokkrum verkefnum lögreglunnar í síðustu viku.
„Í öðru máli var ekið á mann af ásetningi þar sem hann var gangandi á göngustíg. Í allt öðru máli var ökumanni veitt eftirför og við fyrirhugaða handtöku ók sakborningur fyrirvaralaust á lögreglubíl og voru tveir lögreglumenn í mikilli hættu sem stóðu við bílinn.
Á föstudag ógnaði maður lögreglumanni með hnífi við handtöku í miklu návígi svo ekki mátti muna miklu að illa færi. Lögregla hefur haldlagt mikið af fíkniefnum undanfarið og rannsóknir eru í gangi er lúta að skipulagðri brotastarfsemi. Þá eru ótalin heimilisofbeldismál, líkamsárásir og kynferðisbrot sem eru því miður veruleiki,“ segir lögreglan á Norðurlandi eystra í færslu sinni.